Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2005, Blaðsíða 161
Ritdómur
John F. A. Sawyer, The Fifth Gospel.
Isaiah in the History of Christianity.
Cambridge University Press 1996, 281 bls.
Á undanförnum 12-13 árum hefur áhugi minn á sviði gamlatestamentis-
fræða einkum beinst að áhrifasögu Gamla testamentisins og þá sérstaklega
áhrifum Gamla testamentisins á trúar- og menningarlíf hér á landi. Er þar
um að ræða vanrækt svið innan biblíufræðanna. Raunar hefur þessu fræða-
sviði lengst af ekki verið gert hátt undir höfði á erlendum vettvangi heldur.
En á allra síðustu árum er að verða áberandi og ánægjuleg breyting á þessu.
Þar hefur John F.A. Sawyer látið mjög til sín taka. Hann er nú ritstjóri
ritraðar skýringarita við Biblíuna sem koma munu út hjá hinu virta
Blackwell-útgáfu fyrirtæki á næstu árum.
Þar sem fæst þessara rita hafa enn séð dagsins ljós langar mig hér að
vekja athygli á ofannefndu riti Sawyers. Það er ekki glænýtt en er mikilvægt
til kynningar þar sem það er nokkurs konar forsmekkur að því sem koma
skal. Ekki er um að ræða skýringarit (kommentar) í þeirri merkingu að farið
sé yfir Jesajaritið vers fyrir vers en þetta rit á það sameiginlegt með ritröð-
inni væntanlegu að athyglinni er einkum beint að því sem ég hef kallað
áhrifasögu Jesajaritsins en það mætti alveg eins tala um framhaldslíf text-
anna í því sambandi eða viðtökurannsóknir þeirra, eins og bókmenntafræð-
ingar gera gjaman.
Ritið skiptist í 13 meginkafla. Á eftir inngangskafla fjallar k. 2 um Jes-
aja og upphaf kristninnar, k. 3 um frumkirkjuna, k. 4. um dýrkun Maríu
meyjar, k. 5 um mann þjáninganna (þjónsljóðin), k. 6 um Jesaja og Gyð-
inga, k. 7 um siðbótina, k. 8 um hina evangelísku hefð, k. 9 um Jesaja í bók-
menntum og tónlist, k. 10 um leitina að hinum sögulega Jesú, k. 11 um
konur og Jesaja, k. 12 um hið friðsæla konungdæmi og loks er niðurlag í k.
13.
Þetta eru fjölbreytilegir kaflar og heiti þeirra virðist benda til að þeir séu