Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1984, Side 50
48
MÚLAÞING
Guðfinna, f. 6. júlí 1877, d. 24. ág. 1957, giftist Þorleifi Torfasyni, f.
15. apríl 1866, d. 3. apríl 1947. Þau bjuggu í Seldal fyrstu búskaparárin,
en frá 1901 að Hofi.
Guðríður, f. 20. mars 1879, d. 13. okt. 1939, giftist Friðriki Jónssyni
frá Hamragerði í Eiðaþinghá, f. 6. sept. 1874, d. 17. júní 1920. Þau
bjuggu í Seldal, og Guðríður áfram eftir lát Friðriks. Þau eignuðust sex
börn; fimm þeirra komust til þroska.
Ólöf, f. 11. nóv. 1880. Ólst upp hjá fósturforeldrum í Hálssókn. Ólöf
giftist Jóni Diðrikssyni frá Galtarholti í Skilmannahreppi og bjuggu þau
á Svínafelli í Borgarfirði vestra.
Bjarni Erlendur, f. 27. sept. 1882. Fór til Ameríku 1903. Mun hafa
verið ókvæntur og barnlaus.
Þorfinnur, f. 25. maí 1884, d. 7. júní 1885.
Magnús, f. 1. nóv. 1885, d. 29. apríl 1960 á elliheimilinu í Neskaup-
stað. Ógiftur og barnlaus.
Gróa andaðist 24. júní 1887, aðeins 39 ára gömul. Hún mun vera hið
eina af börnum Finns og Sigurlaugar, sem á afkomendur hér á landi, og
hefur orðið mjög kynsæl. — Guðmundur maður hennar bjó seinna með
Helgu Marteinsdóttur í Fannardal og eignuðust þau saman fjögur börn.
Hann lést 30. des. 1898. Fæddur var hann 11. mars 1853.
Þórður, f. 24. febr. 1850, hefur líklega farið alfarinn úr foreldrahús-
um þegar fjölskyldan fluttist frá Alftavík og alist upp hjá vandalausum
eftir það. Kona hans var Guðrún Ólafsdóttir, Guttormssonar og Helgu
Vilhjálmsdóttur frá Brekku í Mjóafírði. Þau bjuggu að Bæjarstæði við
Seyðisfjörð og fluttust þaðan til Ameríku 1889. Bjuggu í Fjallabyggð í
Norður-Dakota. Þau eignuðust átta börn. Þórður dó 1901.
I Sögu Islendinga í Norður-Dakota er mynd af Þórði og Guðrúnu og
fjórum börnum þeirra.
Sigfinnur, f. 25. ág. 1851, fluttist að Skorradal í Norðfirði 1868. Hann
var ,,austanpóstur“ 1876, hafði póstleiðina milh Djúpavogs og Akur-
eyrar. Hans er getið í Söguþáttum landpóstanna og mynd af honum þar.
Hefur hann verið vörpulegur maður.
Sigfínnur kvæntist 30. júní 1877 Sigurlaugu Jóhannesdóttur, f. 7. ág.
1852. Faðir hennar var Jóhannes Jónsson blábuxa og Svanhildar Skúla-
dóttur, sjá framar. Móðir hennar var Katrín Sigurðardóttir, kona Jó-
hannesar. Hún var föðursystir Soffíu konu Sigurðar Finnssonar.
Sigfinnur og Sigurlaug fluttust 1884 frá Norðfírði að Minni-Dölum í
Mjóafirði og þaðan til Ameríku 1889. Þau bjuggu fyrst í Wynyard, síðan
í Dakota. Þau áttu nokkur börn; dóu sum ung, en a.m.k. þrjú komust til