Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1984, Side 92
90
MULAÞING
Héraði og á sunnanverðum Austfjörðum, einkum föðurættin. Jón á Vaði
átti mörg systkini á Héraði.
Faðir Ragnhildar hét Jón Þorsteinsson og bjó á Uppsölum og síðar á
Skálafellsseli í Suðursveit. Móðir hennar hét Sigríður Þorvarðardóttir.
Attu þau 13 börn og komust 10 þeirra til fullorðinsára. Einn af bræðrun-
um var Jón, sá er bjargaði Víðidalsmæðgunum, Olöfu og Halldóru,
áratugum fyrr en þetta gerðist. Tvær systur Ragnhildar, Auðbjörg og
Þórlaug, koma við sögu síðar í þessum kafla en um þessi systkini má
lesa í 4.bindi Múlaþings bls. 85 - 97. Þann kafla ritaði Guðmundur
Eyjólfsson á Þvottá en hann var sonarsonur Jóns Jónssonar.
Sigfús og Ragnhildur munu á ýmsan hátt hafa verið óhkar persónur,
þótt bæði væru harðdugleg og úrræðagóð við búskapinn. Sigfús var
mjög félagslyndur og virðist jafnvel hafa verið laus við heimilið á tíma-
bili, einkum meðan þau bjuggu á Hvannavöllum. Eftir ýmsum frásögn-
um að dæma gat hann hrundið fyrirvaralaust upp dyrum að sölum
gleðinnar, ef svo bar undir, ekki síst ef víndögg var í glasi. Söng hann
þá gjarnan eða sagði skemmtilegar sögur, iðandi af lífsfjöri og gætti
þess þó vel að halla ekki á neinn í frásögnum sínum. En hann hafði
jafnan mikið dálæti á Ragnhildi eftir frásögnum að dæma. Hún var
ákaflega starfsöm, þrifin og dugleg. Var í vistum í Geithellnahreppi
áður en hún giftist Sigfúsi og gat sér gott orð. En hún var hlédræg og
mun hafa unað sér best í fámenni inn til dala. Var jafnvel talin sérlund-
uð af ýmsum. Þar gat þó aðeins verið um feimni að ræða hjá persónu,
sem ekki hefur þjálfast í því að eiga frumkvæði í umgengni við ókunn-
ugt fólk. En hún var virk í heimilislífinu og við alla húslestra hóf hún
sönginn. Ef gesti bar að garði, virtist hún fálát. Annaðist þá Sigfús
samræður en Ragnhildur bar fram veitingar og þótti beini þeirra ávallt
góður.
Jón sonur þeirra fæddist að Hærukollsnesi í Álftafirði 19. ágúst 1864.
Næsta vor fluttu þau að Ytri-Kleif í Breiðdal en sumarið 1866 fluttu þau
að Hvannavöllum í Geithellnadal, sem kallast líka Múladalur sunnan
ár: Þar var ákaflega friðsælt dalbýli og mun Ragnhildur hafa kunnað vel
við sig. Þar fæddust tvö önnur börn, Sigríður og Guðjón en þau dóu
bæði úr barnaveikifaraldri haustið 1878. Var Jón því eina barn þeirra
sem lifði. Geithellnadalurinn var því æskudalur Jóns Sigfússonar og
Hvannavellir bújörð foreldra hans í 17 ár. Þau fluttu sumarið 1883 að
Grund í Víðidal og byggðu þar upp á gömlu rústunum. Fyrstu tvö árin
þar hafa verið eins konar reynslutími, en þau höfðu þó samþykki sókn-
arprestsins séra Markúsar Gíslasonar á Stafafelli til að byggja þarna