Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1984, Page 101
múlaþing
99
Því eru rústir þess miklu lægri en hinna húsanna. Auk bæjarhúsanna
voru svo hesthús og malkofi við myllulækinn. Efni til húsanna (grjótið)
var venjuiega losað á 'haustin, borið þá saman í hrúgur og því ekið á
byggingarstaðinn á snjó eða ís á vetrum, og síðan var húsið byggt næsta
vor. Hér á eftir verða nefnd nokkur dæmi úr dagbókunum um bygg-
ingavinnuna og efnisöflun:
1886, 26. og 27. jan.: við að aka grjóti.
- 8. febr.: ég að taka upp grjót.
- 9. júní: við að byggja fjóstóftina. [Luku við að setja nærþakið á
fjósið 11. júlí].
- 25. sept.: við að koma ofan yfir bæjardyratóftina og kláruðum það.
- 28. sept.: við Snjólfur að byggja suður í Múla.
- 1. okt.: autt niðri í Múla og við að byggja þar allan daginn.
- 7. okt.: við Snjólfur að klára kofann í Múlanum.
1887, 12. febr.: við Snjólfur að taka upp grjót.
- 15. apríl: við að aka ofan úr Miðaftansklettum stórum drangi.
-19. apríl: við að aka grjóti.
- 22. sept.: pabbi skar á fjósið.
- 23. sept.: klárir við fjósið.
- 19. okt.: við að koma ofan yfir tóftina uppfrá og hlaða fyrir bað-
stofuþilið.
1887, 16. nóv.: við að byggja garð úti í helli.
Þeir virðast ekki hafa náð að ljúka byggingum eins og þeir ætluðu sér
haustið 1887, því 29. desember hlóðu þeir snjórétt utan um féð í kál-
garðinum við bæinn. A gamlaársdag hlóðu þeir snjóhús til frekara
skjóls yfir fjósdyrnar. Hins vegar segir Helgi Einarsson í endurminn-
ingum sínum að kýr hafi verið undir palb (baðstofupalb) og hlýtur það
að vera rétt, en það hús, er upphaflega var byggt sem fjós, hefur þá
verið notað sem hesthús, enda kemur hvergi fram í dagbókunum að
þeir hafi byggt hesthús. En btum nú á fleiri tilvitnanir:
1887, 1., 2. og 3. júní: við að byggja kálgarðinn.
- 8. og 9. júní: vorum að byggja lambastekk á tanganum.
-17. og 19. sept.: vorum að byggja réttina í tóftunum. [Gamla bæinn
tók af í snjóflóðinu um veturinn og þeir byggðu heimarétt í rústum
hans].
1887, 14. júlí: ég að kljúfa hebur inni í urðum.
1888, 24. apríl: við að aka grjóti.