Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1984, Page 105
múlaþing
103
1887, 30. nóv.: við Bjarni að skjóta ijúpur, ég búinn að fá 113 [á
haustinu].
1888, 25. jan.: við Bjarni að skjóta rjúpur inni í Hrauni, fengum 41.
— 18. okt.: ég út á Papós með 144 rjúpur.
— 24. des.: á aðfangadag jóla er ég búinn að fá 388 rjúpur [frá
hausti].
1889: I góulok búinn að skjóta 490 rjúpur. [Mikil veiði var um vetur-
inn].
1890, 22. febr.: ég skaut 16 rjúpur um kvöldið.
1891, 8. apríl: ég heima að reyta rjúpur. 10. apríl: ég skaut 18 rjúpur.
Eftir þetta er lítið minnst á rjúpur fyrr en 1902. 9. mars eru þeir Jón
og Þorsteinn sonur hans búnir að fá 686 rjúpur. Dagana 5. til 9. mars fá
þeir 222 rjúpur og 10. mars fer Sigfús með þær út á Djúpavog. Þar seldu
þeir veiðina eftir að fjölskyldan flutti í Bragðavelli. Þá virðast þeir
einnig ákafari við veiðarnar. 4. febrúar það ár færði maður Jóni 6 pund
af rjúpnahöglum.
,,Ég borgaði honum 100 aura og á hann hjá mér eina krónu og 40
aura.“
1902, 5. apríl: ég út á Djúpavog og bar 50 rjúpur og 5 fjórðunga til
baka.
— 8. apríl: fórum við Helgi út á Djúpavog og bárum 110 báðir.
— 26. mars: I það heila í vetur 830 rjúpur.
I ævisögu Þorsteins Kjarvals: Orlaganornin að mér réð (Jón G. Jóna-
tansson skráði) kemur fram að mikið hrun hafi orðið í rjúpnastofninum
haustið 1893. Þá fór hann í eftirleit frá Rannveigarstöðum í Alftarfirði
til Víðidals ásamt tveim mönnum öðrum og fundu þeir mjög mikið af
dauðri rjúpu á leið sinni yfir fjöllin. Þar lá rjúpan víða, steindauð og
stirðnuð en horuð og var það ömurleg sjón. Telur Þorsteinn þetta hafa
verið ráðstöfun af hendi náttúrunnar, þ.e.a.s. drepsótt, því snjólítið var
til fjalla og snjólaust á láglendi svo að hungurdauði var óhugsandi. Hér
má minna á, að Jón Sigfússon minnist aldrei á rjúpnaveiði síðustu 3 árin
í Víðidal.
Aldrei er minnst á sundfuglaveiði í dagbókunum frá Víðidal. Vötn
eru þó í Vatnadæld og tjarnir á Kollumúlaheiði svo og Hnútuvatn. Menn
stunda aldrei veiðiskap um útungunartímann og um heyskapar- og að-
dráttatímann hefur verið nóg annað að gera. 1 september hefði mátt fá
einhverja smávegis veiði ef ekki hefði þurft að nota tímann til annars