Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1988, Page 42
40
MÚLAÞING
arinnar og hefur þeim hjónunum ekki síst verið þörf á því eftir flutninga
og umrót fyrri ára. Má sú saga teljast sérstæð en þó ekki einsdæmi og
sýnir baráttuna á þessum árum, ef í hlut áttu fátæklingar með ríka
sjálfræðisþrá en réðu ekki yfir eigin jarðnæði.
En sumarblærinn við vatnið og ofsabyljir á vetrum kveða ólíkan
brag á Jökuldalsheiði, svo marglynd, sem hún er. En ætla verður, að
þessi fjölskylda í Heiðarseli hafi séð við öllum brögðum óblíðrar nátt-
úru og að þeim hafi búnast sæmilega í Heiðarseli, þótt ekki hafi verið
auður í garði. Sæmilega reyndir bændur hafa kennt börnum sínum að
varast hin köldu él. En hver getur varast hin heitu él?
Svo leið að páskum árið 1875. Að þessu sinni bar þá upp á 28. og
29. mars. Veðrátta var hagstæð fyrir hátíðina, snjór var að mestu
leystur, a. m. k. á láglendi. Á páskadagsmorguninn glaðnaði til með
þurri og hlýrri suðvestan átt. Við getum alveg séð í huganum fjallahring-
inn fannkrýndan, með Snæfell í hásæti fyrir miðju. Vestan bæjar í
Heiðarseli kúrir Þríhyrningsfjallgarður og lætur svo sem ekki mikið
yfir sér, þótt hann sé 800 - 900 metra hár og 30 km að lengd. En það
dugar til að skyggja á Dyngjufjöll frá Heiðarseli, þar sem Askja þrumir
í sýndardvala og getur hrokkið upp af þeim blundi, þegar fólk varir
minnst.
Á fjórða tímanum að morgni annars páskadags braust ákaft sprengi-
gos upp úr Öskju. Þessi hrina stóð um það bil tvo klukkutíma en svo
virðist hafa orðið hlé í hálftíma. Hófst þá önnur hrina enn ákafari
hinni fyrri og stóð fram undir hádegi. Myrkur lagðist yfir með stöðugum
dunum og dynkjum. Hellsuða hefur orðið í kvikuhólfi undir Öskju
svo kvikan braut af sér farg berglaganna og hólfið tæmdist á fáeinum
klukkutímum. Heit og létt askan barst undan vestanáttinni yfir mið-
hluta Austurlands og lá sem hjúpur yfir landinu, þegar upp rofaði um
hádegið og þá skein sólin á gulgráa auðn. Vitað er að fínasta dustið
barst yfir hafið til Færeyja, Noregs og Svíþjóðar. Fyrri hrinu gossins
gætti á Efra-Dal og Inn-Héraði en síðari hrinan kom líka yfir ytri hluta
Jökuldals, alla hreppa á Mið-Héraði og Austfirði frá Borgarfirði til
Berufjarðar. Askan var miklu fíngerðari á fjörðunum. Á Héraði var
jafnfallið öskulagið 2 þumlungar á þykkt en 4 - 6 þumlungar í Jökuldal
og enn þykkara á bæjunum í suðurhluta Jökuldalsheiðar. Norðurheiðin
slapp að mestu. Vopnafjörður og Hólsfjöll sluppu alveg. Næstu daga
mun hafa verið kyrrt og bjart veður.
Ekki þarf að orðlengja það að ringulreið ríkti í öskufallssveitum
fyrst eftir gosið. Á Efradal fóru 11 bæir í eyði og öll býlin í Suðurheið-