Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1988, Page 66
64
MULAÞING
ekki burt fyrr en í október með sauðatökuskipi og vita menn ekki enn
um verð á henni eða hvað sauðir pöntunarfjelagsins hafa selst. Pöntunar-
fjelag Hjeraðsmanna stendur enn og er Zöllner í Newcastle enn umboðs-
maður þess, því lán það, sem herra R. Slimon lofaði að ljá því til að
byrja með sjálfstæða verslun brást algjörlega og sendi þá fjelagið í umboði
sínu Jón Bergsson á fund Zöllners til þess að tryggja við hann fjelagsskap-
inn. Það tókst og komu frá honum nægar vörur í sumar en seint var það
og urðu mönnum nokkuð örðugir flutningar vegna þess. Um 12000 pund
af ull voru send frá fjelaginu og 2300 sauðir í haust, þar að auki rúm 400
sem Zöllner bauðst til að selja gegn peningum.
Víða eru pöntunarfjelagsflokkar að hreyfa sig en kaupmenn gjöra
allt, sem þeir geta til að bæla þær hreyfingar niður. í vetur stækkaði
pöntunarfjelagið á Hjeraði aptur og eru nú auk þriggja hinna gömlu
deilda í því Tungumenn, Skriðdælingar og nokkrir í Eiðaþinghá og
Loðmundarfirði. Skuld fjelagsins við Zöllner er víst nokkuð óvíst hver
hún er. Umsetning í ár um 40000 kr.
O. Wathne hefir boðið Hjeraðsmönnum að flytja vörur í næstkom-
andi júní og júlí á Lagarfljótsós, byggja þar hús og selja þær þar gegn
sauðfje, hestum og ull. Af því getur orðið nokkur framfaravon fyrir
Hjeraðið og jafnvel Vopnafirðinga og hafa menn því tekið boði hans
vel og skrifað honum um vörur. Verslun ill á Vopnafirði, auðug en
mjög einokunargjörn og ásælin og líkt er á Djúpavogi. Eskifjarðarversl-
anir eru mjög litlar og ónógar, - þar eru nú nær engar nauðsynjavörur.
Á Seyðisfirði eru nú nægar vörubirgðir: í Gránufjelagi, í Thostrups-
verslun og Pöntunarfjelagi. Það hefir nú nægar vörur til vorbirgða.
R. Slimon, E. Sæmundsen, Zöllner og fleiri keyptu sauði í haust og
létu fyrir þá 13 - 19 kr. Kaupmenn vilja nú helst kaupa lifandi fje,
sauði og geldar ær, og selja það aptur Englendingum. Hross keyptu
þeir og nokkur og sendu til Englands með sumar- og haustskipum.“
Það er augljóst á þessum annál, hversu glögga yfirsýn Sæbjörn Eg-
ilsson hefur um þessi mál. Svo mætti ætla á þessu yfirliti að deildirnar
í pöntunarfjelaginu væru ekki eins margar og sagt er í tilvitnuninni frá
17. nóvember. Líklega er þó um smá fljótfærni að ræða, þegar Sæbjörn
ritar annálinn. Svo flettum við yfir á blað næsta árs.
20. mars 1889: „Fundur hjer til að skipta vöruleifum, sem til eru í
pöntunarfjelaginu.“
7. júní: „Pöntunarfjelagsfundur á Hafursá. Ýmis umtalsefni, sem
snerta hag fjelagsins.“ (Þar bjó Sigurður Einarsson, mágur Þorvarðar
læknis).