Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1988, Blaðsíða 71
MÚLAÞING
69
kaupmanna út af því, þar eð hver þeirra leitast við að draga sér við-
skiptamenn, hvar sem fengist geta. Skútur sínar senda þeir á allar
víkur og voga, þar sem nokkra verslun er að fá og bjóða bestu kosti,
sem þeir geta staðið sig við. Allar verslanir hafa í sumar verið hinar
sömu sem í fyrra og að auki þrjár á Búðareyri við Reyðarfjörð. Þar
voru byggð tvö stór verslunarhús. í öðru þeirra hefir verslað Friðrik
Wathne, bróðir Ottós, sem býr á Búðareyri við Seyðarfjörð og hefir
Friðrik þá verslun að ljeni frá bróður sínum. Fjarska mikinn trjávið
hafa þeir bræður selt í ár, nokkra gufuskipsfarma, því kalla má að
Wathne hafi nú alla timbursölu við Austurland. í fyrra ljet hann -
Ottó Wathne - smíða brú á Fjarðará í Seyðisfirði og í sumar sendi
hann skip, sem sigla átti með vörur á Lagarfljótsós og setja þar upp
verslunarhús. Sú ferð heppnaðist ekki, skipið rakst á grunn í ósnum,
en allmikið var selt þar og mælt er að Wathne ætli sér enn að reyna
við ósinn og verslun og flutninga eptir Lagarfljóti. Gufuskip hafði hann
lengi í förum hér við land og seinast 1. október flutti hann 150 sjómenn
og nálægt 30 aðra skólapilta og ferðamenn til Reykjavíkur. Ferðir
póstgufuskipanna þykja ekki hagkvæmar, engin ferð suður um iand
að haustinu. Wathne seldi farþegapláss þessi: í káetu 23 krónur og í
lest 18 krónur.
Kaupmenn ljetu nú fyrir hvíta vorull 80 aura, 35 aura tólg og 11 -
12 pund í málsfiski, 20 aura besta sauðakjöt. Sveitaverslunum fjölgar
ekki enn og ekki þykir sú eina, sem komin er á fót á Fljeraðinu -
Egilsstöðum - bæta kjör sveitamanna. Slimon keypti fje við öllu lægra
verði en í fyrra en fjekk nú fátt og ekki fullan skipsfarm.
Fleira keyptu þeir umboðsmenn Wulfs-verslana, Baker og Stefán,
verslunarmaöur á Diúpavogi og komu sér mikið betur við almenning.
Þeir ijetu allt að 22 kr. fyrir vænstu sauði og 15 kr. fyrir veturgamalt
fje og geidar ær. Flestir kaupmenn voru í fyigd með þessum aðalfjár-
kaupamönnum og viidu einnig ná í fje. Til Zöllners í Newcastle voru
nú send í sumar nálægt 16000 pund af hvítri ull, sem hann seidi fyrir
pöntunarfélagið, 7814 eyri hvert pund. Honum voru einnig sendir sauðir
og geidar ær frá íjelaginu 2351 tals, sem hann hefir selt til jafnaðar
íyrir rúmar 18. kr. hvern. Jón Bergsson verður nú ekki framvegis fyrir
pöntunarfjelaginu og er ætiast til að í hans stað komi Snorri Gíslason
Wium, sem er verslunarmaður á Seyðisfirði. Hann verður þar búsettur
og sér um alla afhendingu á vörum fjelagsins á sinn eigin kostnað;
móttöku á ull, umsjón með þeim tveim húsum sem fjelagið á þar,
verslunaráhöldum og fl.“