Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1988, Page 93
MÚLAÞING
91
þeir kvarta yfir því, að ull og útflutningssauðir hafi verið í reikningum
færð til á hærra verði, en í raun og veru hafi fengist fyrir þær vörur,
nfl. færð til á áætluðu verði, er reyndist hærra en hið sanna verð.“
Deildarstjórarnir munu hafa óskað eftir aukafundi út af málinu.
Stjórn félagsins taldi ógerlegt að færa vöruverðið niður í sannvirði
og innheimta mismuninn en ákvað að ull þessa árs skyldi tekin verðlaus.
Akveðið var að halda aukafund í september á undan sauðatökunni.
Afhendingarmanni var falið að semja við Vigfús Guttormsson um
sláturstörfin og kaup hans og undirbúa slátrunina í samráði við hann.
Jón Stefánsson skýrði frá því að í ferð sinni til útlanda um veturinn
hefði hann horfið frá viðskiptum við Zöllner en keypt mest hjá Dines
Petersen stórkaupmanni í Kaupmannahöfn, og að samist hefði við
formann dönsku kaupfélaganna um kaup á 200 tunnum af kjöti að
hausti. Jóni var einnig falið að fara á væntanlegan fund á Akureyri til
að ræða um samband hinna íslensku kaupfélaga „fyrir fjelagsins hönd
upp á væntanlegt samþykki aðalfundar.“ Nefndin gaf út víxil til toll-
greiðslu „fyrir 6000 kr. til borgunar í útibúið á Seyðisfirði.“
Aukafundurinn var haldinn á Egilsstöðum 13. september. Þar var
samþykkt „að láta verð á ull og útfluttum sauðum standa óhaggað eins
og það stóð í reikningum síðasta árs.“ „Samþykkt - að slátra öllu fje
sem fjelagið fær í haust undir umsjón Vigfúsar Guttormsonar í Geita-
gerði og skal allt fje tekið eftir vigt heima í deildunum og verð áætlað
þannig: fyrir dilka og algelt fje ungt frá 50 pund til 100 pund 14 aura
[pundið]; frá 100 - 115 pund 15 aura; frá 115 - 130 pund 16 aura og
yfir 130 pund 17 aura; fyrir gamlar ær geldar, aðrar ær og dilka fyrir
innan 50 pund á 12 aura.“ Eigendum var leyft að slátra rýra fénu
sjálfum og verð þá áætlað 20 aurar á kjöti og mör en 48 aurar í gærum
[pundið].
Deildarstjórum var falið að kynna í deildunum hugmyndina um
stofnun sambands kaupfélaga. J. S. skýrði frá Akureyrarferð sinni um
sumarið.
Aðalfundur 1906 var svo haldinn á Egilsstöðum 13. og 14. nóvember,
eins og venjulega að viðstöddum deildarstjórum, félagsstjórn og af-
hendingarmanni. Vegna athugasemda endurskoðenda var samþykkt
að fara þess á leit við Zöllner „að gefa uppbót á ullarverðinu, er
samsvari því, er ullarverð var hærra á þeim tíma er ullin var send
honum til sölu, en það verð sem hann gaf.“ Félagsstjórn var falið „að
grennslast eftir því, hvort nokkur tiltök muni að koma ábyrgð fram á
hendur honum fyrir ullarsöluna eftir því sem málið er vaxið.“ Og enn