Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1988, Page 94
92
MÚLAÞING
voru athugasemdir frá endurskoðendum vegna sölu Zöllners á dilka-
kjöti og saltfiski og „stjórninni falið að lýsa óánægju fjelagsins yfir
þeirri sölu, sjer í lagi fisksins og leita skýringa á því, hvers vegna sú
sala hafi þurft að verða eins og hún reyndist.“ Sjóður félagsins við
árslok 1905 var kr. 17674,12 en hús, áhöld og bryggja voru metin á
kr. 22234,72. „Innheimta utanfélagsskulda var sérstaklega falin afhend-
ingarmanni og honum gefið leyfi til að fá menn til innheimtu, þar sem
það væri óumflýjanlegt, gegn hæfilegri þóknun -. Sjer í lagi er honum
falið að ná viðurkenningu fyrir skuldum, er eigi er enn skrifleg viður-
kenning fyrir og samningar um borgun.“
Deildarstjórum var falið að kynna heima í deildum:
a) „að setja útsöluverð á öllum vörum fjelagsins sem líkast því sem
tíðkast hjá kaupmönnum umhverfis en skipta síðan verslunarágóð-
anum meðal fjelagsmanna að frádregnu tillagi til stofnsjóðs."
b) tillögu um að koma félaginu í líkt horf og tíðkast hjá hinum dönsku
kaupfélögum.
Halldór Vilhjálmsson á Eiðum, Jón Bergsson á Egilsstöðum og feðg-
arnir Guttormur Vigfússon og Vigfús Guttormsson í Geitagerði voru
kjörnir í nefnd til að leita upplýsinga og áætlana um kostnað við bygg-
ingu sláturhúss. Deildarstjórum falið að kynna þetta mál heima í deild-
unum. Og enn var þeim falið að ræða heima í sveitum um stofnun
sambands kaupfélaga og skýra formanni félagsins sem fyrst frá úrslitum.
Með von um samþykki deildanna voru Jón Stefánsson, Sölvi Vigfússon
og Jón Bergsson kjörnir „til að mæta á stofnfundi Sambandsins, er
halda á á Akureyri fyrir maímánaðarlok næst komandi.“
Endurskoðendur og afhendingarmaður voru endurkjörnir en Brynj-
ólfur Bergsson á Ási kom í stjórn í stað Sigfúsar Halldórssonar á
Sandbrekku.
Á stjórnarfundi í félaginu 23. júlí var skýrt frá inngöngu pöntunar-
félagsins í sambandið á Akureyrarfundinum og að þar hefði verið rætt
um erindreka erlendis fyrir félögin í sameiningu; einnig að Jóni Jónssyni
í Ærlækjarseli hefði verið falið að kynna sér erlendis fyrirkomulag og
vöruverð kaupfélaga. Hann fékk 500 kr. styrk af sambandsfé á móti
landssjóði til ferðarinnar. Rætt var um „sameiginlegt vörumerki á kjöti
þar sem líkt var með það farið í félögunum.“
Aukafundur var haldinn á Egilsstöðum 26. september. Til umræðu
var fjártakan á haustinu og samþykkt að slátra öllu seldu fé undir
umsjón Vigfúsar Guttormssonar í Geitagerði. Skyldi komið með féð
til Seyðisfjarðar á venjulegum tíma í október og í þessari röð: