Þjóðmál - 01.09.2009, Síða 13

Þjóðmál - 01.09.2009, Síða 13
 Þjóðmál HAUST 2009 11 til að Svavar gæti komið gagnrýni sinni á lögfræðingana á framfæri . Hinn 15 . júlí skýrði hinn norski seðlabankastjóri frá því, að bankinn stæði að baki lögfræðingunum . Upphlaup þeirra félaga reyndist mark laust . Tilgangurinn helgaði þó meðalið: Að reyna að kæfa allar gagnrýnisraddir . Hér eru nefnd þrjú dæmi, sem öll tengjast Icesave-málinu, þar sem vinstri-grænir reyna að þagga niður í þeim, sem halda uppi málefnalegri gagnrýni á Svavars-samn- ing ana . Hið einkennilega er, að þögg unar- stefna þess arms vinstri-grænna, sem styður Stein grím J . og Svavar í málinu, nýtur að því er virðist velvilja fjölmiðlunga, enda tóku þeir þá stefnu í upphafi að best væri að koma Icesave sem fyrst aftur fyrir sig, það trufl aði fyrir höfuðmálinu, að troða Íslandi í Evrópu sambandið . Eftir að ESB-aðildarumsókninni var þröngv að í gegnum alþingi, er engu líkara en fjölmiðlar og stjórnvöld hafi ákveðið að best væri að þegja sem mest um málið . Hið sama kemur nefnilega í ljós og í Icesave-málinu, þegar ESB-málið er brotið til mergjar: Þar er dæmalaust illa staðið að verki . Verkefnið er svo stórt og viðamikið, að ís lenska stjórnkerfið ræður ekki við það á tímum aðhalds og niðurskurðar . Össur Skarp héðinsson, utanríkisráðherra, lætur eins og ESB sé til þess búið að styrkja stjórnarráð Ís lands til að sinna þeirri skyldu sinni að gæta hags muna þjóðarinnar í úrvinnslu umsóknar Íslands . Metnaður utanríkisráðherra fyrir hönd þjóðarinnar er ekki meiri, enda vill hann í ESB, hvað sem tautar og raular . IV . Í aðdraganda bankahrunsins á tímum Baugs málsins stigu fjölmiðlar varlega til jarð ar til að styggja ekki Baug, enda fengu fjöl miðla menn dembuna yfir sig, teldu Baugs menn á sig hallað . Baugsmiðlarnir voru að sjálfsögðu trúir eigendum sínum og sömu sögu er að segja um alla, sem voru á Baugs spenanum . Morgunblaðið hélt sér frekar til hlés eins og sannaðist til dæmis, þegar ákærur á hendur Baugsmönnum voru birtar sumarið 2005 og málsvörnin hófst í Frétta blaðinu með stuðningi fjölmiðla og lög fræð inga í Bretlandi . Á meðan beðið var dóms hæstaréttar um frávísun héraðsdóms á ákærunni í Baugs- málinu í september 2005, gerði Fréttablaðið harða hríð að Styrmi Gunnarssyni, rit- stjóra Morgunblaðins. Tilgangurinn var að hafa áhrif á dómara og aðra í þá veru, að um pólitíska aðför að Baugi hefði verið að ræða . Styrmir hefði verið í hópi upp hafs- manna Baugsmálsins og í samsæri með Davíð Oddssyni fyrir atbeina Jóns Stein ars Gunnlaugssonar og Kjartans Gunn ars sonar . Eftir myndun ríkisstjórnar Jóhönnu Sig- urðardóttur 1 . febrúar 2009 hafa stjórn- arsinnar beitt sömu aðferð og Baugsmenn gerðu á sínum tíma . Gerð eru hróp að þeim, sem ekki samsinna öllum meginmálum ríkisstjórnarinnar og fjölmiðlakórinn kyrjar undir . Steingrímur J . Sigfússon er hinn pólitíski holdgervingur ríkisstjórnarspunans, enda er honum hampað mest allra og þöggunin háværust í hans þágu . Í skjóli þess, hvernig Samfylkingin og aðrir snerust til varnar fyrir Baugsmenn, þreifst hér fjármálastarfsemi, sem nú sætir rannsókn hjá sérstakri nefnd á vegum alþingis og einnig hjá sérstökum saksóknara . Í skjóli þeirrar þöggunar, sem Samfylking og vinstri-grænir krefjast nú, færast ríkisaf skipti af stóru og smáu í vöxt . Upplýs ingum er hald ið leyndum, eins lengi og frekast er kostur, ráðist er á gagnrýnendur af offorsi og frekju . Fjárhagslegt tjón þjóðarinnar er alvarlegt og sárt . Hitt er þó enn alvarlegra og sárara, ef því fylgir aðför að góðum og opnum stjórnarháttum og þögn um allt, sem miður fer, að kröfu hörundsárra valdhafa, sem telja sig eina vita .
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.