Þjóðmál - 01.09.2009, Síða 17

Þjóðmál - 01.09.2009, Síða 17
 Þjóðmál HAUST 2009 15 Ég var hins vegar búinn að gera það upp við mig að ef það yrði áfram mikill ófriður í flokknum myndi ég hverfa á braut . Framsóknarflokkurinn var illa farinn, ekki aðeins af Evrópuátökum og hægri/ vinstri-deilum, heldur af spillingarumræðu . Halldór Ásgrímsson var til dæmis hart leik- inn af spillingarumræðunni síðustu árin . Finnur Ingólfsson var jafnan dreginn fram og fleiri lykilmenn flokksins . Ég gerði mér alltaf grein fyrir að það tæki langan tíma að byggja Framsóknarflokkinn upp og hreinsa af honum spillingarstimpilinn og að nýtt fólk yrði að koma til sögunnar til að ná þeim markmiðum . En mér fannst þetta fara vel af stað . Ég fór um landið og fann mikinn stuðning flokksmanna við mín störf . Við vorum komin í 12% í mælingum í Gallup í október 2008, þannig að ég var nú frekar bjartsýnn á að stjórnar andstaða mín og þingflokksins félli fólki í geð, ekki síst þegar fór að harðna á dalnum í efnahagsmálum hjá ríkisstjórninni . En í flokknum var þetta ólgandi Evrópu-lið og alls ekki friðvænlegt . Ég taldi mig hafa fundið góða sáttaleið sem ég lagði fram á miðstjórnarfundi vorið 2008 um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu þannig að þjóðin tæki bæði ákvörðun um hvort sækja skyldi um aðild og hvort sam þykkja skyldi aðildarsamning . Þá leið sem sjálfstæðis- menn gerðu síðar að sinni . Evrópusinnarnir féllust á þessa leið, þannig að þarna sló ég á vissan hátt vopnin úr höndum þeirra en það ýtti um leið undir ófriðinn, einsog síðar kom á daginn . Þegar bankarnir hrundu svo í byrjun október 2008 sagði ég á Alþingi að nú þýddi ekkert að fjasa um Evrópusambands- aðild eða evru, við værum stödd á strand- stað íslensku þjóðarinnar og nú væri það skylda okkar allra að taka höndum saman á íslenskum skóm að bjarga þessari þjóð . Við þessi ummæli fór Evrópuliðið í flokknum gersamlega á límingunum . Það ákvað að skera upp herör gegn mér á miðstjórnar- fundi um miðjan nóvember . Þessi andróður allur fór ekki framhjá mér þótt ég ætti sterkt bakland . Ég hugsaði með mér að flokkurinn þyldi ekki enn eitt átaka tímabilið . Í hverju áfalli, svo sem hnífa- og fatamáli Björns Inga, datt fylgið niður um helming, fór í 5–7%, og það gerði það líka þegar ég fór . Ég ákvað flokksins vegna að leika óvæntan leik við þessar aðstæður og tók þá snöggu ákvörð- un að hverfa af vett vangi stjórnmálanna og segja af mér for mennsku . Þar með fékk Valgerður Sverrisdóttir flokk inn í fang ið allsendis óundirbúin . Ég fann við brotthvarf mitt að nú var komið að því að grasrótin tækist á við þennan eilífa ófrið í flokknum . Ég vissi fyrir að Páll Magnússon, fyrrum aðstoðarmaður Finns Ingólfssonar og Valgerðar Sverrisdóttir, var þá þegar orð- inn kandídat flokkseigendafélagsins til formennskunnar . Hann hlaut einungis rúm 18% í formannskjörinu og féll út í fyrstu umferð . Það var erfitt fyrir flokkseigendafélagið að kyngja þessari niður stöðu . Höskuldur Þórhallsson tilkynnti framboð sitt og var á margan hátt vænlegur kostur, enda kemur hann firn a sterkur út úr sumarþinginu . Ég get sagt frá því hér að Sigmundur Davíð Gunn laugsson hafði verið samstarfsmaður minn og ráðgjafi í hálft ár og ég þekkti hann áður sem fjölmiðlamann . Ég hvatti hann til framboðs sem honum fannst nú ekki líklegt á þeirri stundu . En niður- staða flokksmannanna í landinu verður í rauninni sú að þeir vilja finna mann sem tengist ekki ákveðnum öflum í flokknum . Flokksþingið var ákall um frið og einingu
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.