Þjóðmál - 01.09.2009, Síða 24
22 Þjóðmál HAUST 2009
Tangarsókn vinstriflokkanna fyrir kosningarnar í vor heppnaðist; Sam -
fylk ingin og Vinstrihreyfingin – grænt
fram boð náðu meirihluta á þingi og mynd-
uðu ríkisstjórn . Sigurinn er keyptur dýru
verði því með honum fórnaði róttæka
vinstrið á Íslandi stefnumáli sem í senn
hefur skilgreint róttækni og verið haldbest
í sókn og vörn flokka vinstrimanna . Þegar
kurlin koma til grafar verða aðrar og meiri
breytingar á landslagi íslenskra stjórnmála
en forkólfar vinstriflokkanna ráðgerðu .
Allt frá klofningi Alþýðuflokksins á fjórða
áratug síðustu aldar eru full veld is stjórn mál
í forgrunni róttækra vinstri manna . Komm-
únistaflokkur Íslands, Sósíalista flokk ur inn,
Alþýðubandalagið og síðast Vinstri hreyf-
ingin – grænt framboð höfðu allir þjóð-
frelsismálstaðinn í kjarna sínum . Önnur
málefni, eins og marxísk hugmyndafræði,
þjóðnýting atvinnutækjanna, sovétdaður,
þriðjaheimssamúð, heimsfriðarboðskap ur,
kven frelsi og náttúruumhyggja komu og
fóru; sjálfstæðispólitíkin var kjurr .
Stærstu mál Íslandssögunnar á síðustu
öld blésu lífi í sjálfstæðisbaráttu róttækra
vinstrimanna . Andóf gegn hersetu Breta,
stofn un lýðveldis, mótmæli gegn herstöðv-
ar samn ingi við Bandaríkin, inngangan
í NATO og útfærsla landhelginnar skil-
greindu sjálfsvitund róttækra vinstrimanna
og pólitík þeirra .
Stærstu sigrar róttækra vinstrimanna
unn ust í sjálfstæðisbaráttunni . Lúðvík Jós-
eps son, sjávarútvegsráðherra, síðar for-
mað ur Alþýðubandalagsins, skrifaði undir
reglu gerð um útfærslu landhelginnar í 12
mílur árið 1958 . Alþýðubandalagið var
aftur gerandi þegar landhelgin var færð út
í 50 mílur árið 1972 .
Í nafni sjálfstæðis voru gerðar málamiðl-
anir við höfuðóvininn . Við stofnun lýðveld-
isins náðu forystumenn kommúnista, Einar
Olgeirsson og Brynjólfur Bjarnason, saman
við formann Sjálfstæðisflokksins, Ólaf
Thors, og þeir skrifuðu stjórnarskrá saman
að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu .
Daginn sem síðasti landsfundur Alþýðu-
bandalagsins var haldinn, haustið 1999,
sendi Össur Skarphéðinsson þingmaður Al-
þýðuflokksins kveðju úr þingstól Al þingis
um að nýr flokkur sameinaðra vinstri-
manna myndi stefna á inngöngu í Evrópu-
sambandið . Þetta var rauða dulan sem
tryggði að vinstrimenn yrðu áfram klofnir
í tvo flokka .
Þegar Vinstrihreyfingin – grænt framboð er stofnuð fyrir áratug eru Ameríkanar
að tygja sig til brottfarar af Miðnesheiði
Páll Vilhjálmsson
Hugsjónir, völd og svik