Þjóðmál - 01.09.2009, Side 36

Þjóðmál - 01.09.2009, Side 36
34 Þjóðmál HAUST 2009 inn . En þá er nauðsynlegt að leita svara við síðari spurningunum sem lítill gaumur virðist hafa verið gefinn í samningaferlinu . Á island.is, sem er upplýsingasíða á net- inu vegna Icesave, sést að öll gögn sem unnin voru vegna þessara mikilvægu atriða voru gerð eftir að samningum lauk og samninganefndin lagði þau ekki til grundvallar sinni vinnu . Það er þó engin afsökun fyrir því hvers vegna gerður var samningur um jafna stöðu krafna Íslands, Bretlands og Hollands gagnvart þrotabúi Landsbankans . Er hugsanlegt að í því liggi stærstu mistök samninganefndarinnar? Getum við borgað? Svarið við þeirri spurningu er: Lík-lega ekki . Gylfi Magnússon, við skipta- ráðherra, hefur rætt um að á íslenska ríkið og þar með skattgreiðendur falli um 350 milljarðar íslenskra króna (tveir milljarðar evra) . Sú fjárhæð getur orðið mun hærri þó ekki væri nema vegna þess að eignir gamla Landsbankans, sem færðar hafa verið yfir í Nýja Landsbankann, eru ofmetnar . Skuldabréf sem Nýi Landsbankinn gaf út til þess gamla, og metið var í upphafi á 284 milljarða, mun aldrei ná að standa undir þeim verðmætum . Gylfi Magnússon og Steingrímur J . Sigfússon, fjármálaráðherra, hafa upplýsingar um þessa staðreynd og hafa haft í allt sumar! Hafa þarf í huga að þeir 350 milljarðar sem Gylfi Magnússon segist hafa reiknað út að við getum borgað eru miðaðir við bestu hugsanlegu niðurstöðu . Einhvers staðar frá þurfa þessir pen- ingar að koma og það verður frá skatt- greiðendum, einstaklingum og fyrir tækj- um . Stórkostlegur niðurskurður þarf að eiga sér stað hjá hinu opinbera auk þess sem kaupmáttur mun minnka um talsvert meðan skattgreiðendur borga skuldir Lands bankans . Allir í samninga nefndinni munu vera ríkisstarfsmenn, með tryggð eftirlaun og annað í þeim dúr . En það sama verður ekki sagt um venjulega skatt- greiðendur á Íslandi . Þeir munu þurfa að sætta sig við lakari lífskjör og verri þjónustu frá hinu opinbera meðan greitt er af lánunum, að því gefnu að Ísland standi yfirleitt undir afborgunum, en það skal dregið stórlega í efa . Eftir að nokkrir hagfræðingar komu fram og gagnrýndu samningana var Seðla - bankinn fenginn til að gefa álit á þeim og getu Íslands til að greiða . Virtist álitið hafa verið pantað enda sást á þessu plaggi að norski lausamaðurinn ætlaði ekki að styggja vini sína í vinstri flokk unum . Sjálf- stæði Seðlabankans er orðin tóm þegar rík is stjórnin getur pantað álit sem þetta . En þótt niðurstaðan hafi verið pöntun gat Seðla bankinn ekki falið þá staðreynd að ein meginröksemdin fyrir því að Íslend ingar geti borgað er að viðskiptajöfnuður verði jákvæður allan tímann sem á greiðslum stendur . Og hver skyldi vera ástæðan fyrir jákvæðum viðskiptajöfnuði allan þann tíma? Jú, veik króna . Almenningur kaupir ekki mikið frá útlöndum þegar krónan er veik . Það er sem sagt niðurstaða Seðlabanka Íslands að Íslendingar geti borgað Icesave- skuldina með því að draga stórlega úr kaup mætti landsmanna, þ .e . lífskjör verða að dragast mikið saman . Margir drógu í efa þær forsendur sem Seðla bankinn lagði til grundvallar áliti sínu . Fjárlaganefnd ákvað að biðja Hagfræðistofnun Háskóla Íslands um sitt álit . Niðurstaða Hagfræðistofnunar var á allt annan veg en Seðlabankans . Hagfræðistofnun álítur að fjármagna þurfi lánið síðar (en það þýðir að Icesave sé kúlulán, sem þykja ekki fín í dag) og telur að líkur séu á fólksflótta frá landinu . Aðallega af þessum ástæðum ákvað fjárlaganefnd að

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.