Þjóðmál - 01.09.2009, Síða 50

Þjóðmál - 01.09.2009, Síða 50
48 Þjóðmál HAUST 2009 ríkið skuli reist á sósíalisma undir lýðræðis­ legu einræði þjóðarinnar, svo undarlega sem þetta nú hljómar í okkar eyrum . En kredd- ur hafa óspart verið lagðar fyrir róða . Verulega hefur dregið úr ríkisrekstri og kapp verið lagt á að taka upp á sem flestum sviðum þær aðferðir og rekstrarform er mestum árangri skila – burtséð frá hvort þau verði fræðilega heimfærð undir sósíalisma eða kapítalisma . Um leið og einkarekstur og fleira framandi hefur haldið innreið sína í sívaxandi mæli, gætir þó mjög greinilega feimni við að viðurkenna slíkt í orði . Frem ur er talað um sósíalisma í kínverskri út færslu eða með kínverskum sérkennum („with Chinese characteristics“) . Og fyrrverandi for seti Kína, Jiang Zemin, sem heimsótti Ís land árið 2002, hefur komist þannig að orði, að hin kínverska gerð sósíalismans sé ennþá að slíta barnsskónum og muni þurfa langan tíma til að fullmótast . Það er því svo, að þótt margt sem nú ber fyrir augu í Kína líkist því sem er rótgróið á Vesturlöndum, vilja kínverskir ráðamenn fremur líta svo á að þeir séu að skapa nýtt en hverfa frá hugsjónum sínum og ganga á vit hugsjóna annarra . Þetta viðhorf tengist einnig margskonar gagnrýni sem vart verður meðal Kínverja á framkvæmd lýðræðis í þeim löndum sem teljast til lýðræðisríkja . Og takmarkið er auðvitað að það stjórnarfar sem þróist í Kína – þeirra útfærsla – taki öllu öðru fram í fylling tímans . Hyggindi sem í hag koma Margt í stjórnarfari í Kína vekur athygli fyrir raunsæi og hyggindi . Tvö einföld dæmi mætti nefna um þetta: Deng gerði sér grein fyrir að ómögulegt væri að lyfta allri kínversku þjóðinni upp í einu efnahagslega . Því væri rétt að byrja í stórborgunum og austurhéruðum landsins . Nýta síðan í fylling tímans styrkinn sem þar yrði náð til framfarasóknar inn í sveitirnar . Hitt dæmið er takmörkun barneigna, eitt barn á hjón . Með því var komið í veg fyrir að sá mikli vandi – að tryggja afkomu þjóðarinnar og útrýma fátækt – hlypi á undan stjórnvöldum . Sleginn var hringur utan um vandann um leið og ráðist var í að leysa hann . Ýmsum hefur reyndar þótt hér ómann- úð lega farið að – og vísbendingar eru því mið ur um að framkvæmdin hafi í sumra hönd um verið allhrottafengin . En Kín- verjar eru nú nálægt 1,3 milljörðum – fimmt ungur mannkyns . Í byrjun þessarar aldar mátti lesa að hefðu barneignir ekki verið takmarkaðar væru Kínverjar þá orðnir um 338 milljónum fleiri . Skv . því væru þeir fyrir löngu orðnir meira en 1,7 milljarðar, ef þá matvælaskortur og sjúkdómar hefðu ekki komið í stað stjórnarstefnunnar til enn harkalegri takmörkunar á fólks- fjölgun inni . Bandaríkjaþing, sem lætur sig margt varða, efndi fyrir allmörgum árum til yfirheyrslu um þessa takmörkunarstefnu Kínverja . Hraut þar margt gagnrýnisorðið . Þó verður að ætla, að þeim mönnum vestra, sem áhyggjur hafa af þróuninni í Kína, yrði síst rórra, ef Kínverjum fjölgaði hömlulaust . Skv . spám stefnir í að Kínverjum hætti að fjölga þegar þeir ná 1,6–1,7 milljörðum . Stöðugur hár hagvöxtur um árabil Hagvöxturinn í Kína hefur árum saman verið mjög hár, gjarna 7–8 af hundraði eða meira skv . opinberum tölum . Þær eru reyndar ekki óumdeildar og staðhæft að t .d . skýrslugjafir úr afskekktum héruðum mótist síður af raunveruleikanum en vilja flokksforkólfa þar til að sýna að þeir hafi staðið í stykkinu, náð markmiðum lands-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.