Þjóðmál - 01.09.2009, Page 53
Þjóðmál HAUST 2009 51
hags muna meirihluta þjóðarinnar og standa
vörð um annars vegar framleiðsluöflin og
hins vegar menningarþróunina . Með þessu
sýnist vera af hyggindum og fram sýni
brugðist við þeirri þróun sem orðin er í
þjóðfélaginu og fyrirsjáanlegt er að haldi
áfram .
Þessi breyting á Kommúnistaflokknum
er mjög áþekk þeirri sem Gorbatsjov reyndi
allt hvað hann gat að koma um kring í
Sovétríkjunum en lánaðist ekki vegna
öflugrar andstöðu íhaldsaflanna í flokki
hans .
Menningarbyltingin
sætir harðri gagnrýni
Því er haldið fram – og trúað – að meira
lýðræðis og frjálsræðis gæti nú innan kín-
verska kommúnistaflokksins en áður var;
sömuleiðis innan þjóðþingsins og ráð gjaf-
arþingsins . Úti í þjóðfélaginu eiga sér einnig
stað frjálslegar umræður ólíkt því sem áður
var . M .a . er ekki hikað við að gagnrýna
hve skaðvænleg „menningarbyltingin“ hafi
verið, hvernig hún hafi seinkað framförum
sem valdi því að nú þurfi þjóðin að leggja
ennþá meira að sér til að vinna upp þennan
glataða tíma . Þá hafa á síðustu árum hafist
tilraunir með lýðræðislegar kosningar til
sveitarstjórna víðsvegar um landið og er
ætlunin að færa út kvíarnar í því efni .
Jiang Zemin fv . Kínaforseti hefur komist
svo að orði að kínverska þjóðin hafi aldrei
í sögu sinni ráðið meiru um eigin hag .
Trúlega er þetta rétt . Þróunin hefur þannig
verið í rétta átt, þótt mörgum þyki hægt
farið . Þar ber sjálfsagt að hafa meðal annars
í huga að tímaskyni þjóðar sem státar af
meira en 5000 ára gömlum menningararfi
hættir til að vera annað en þeirra sem eiga
sér skemmri sögu .
Ekki er langt síðan tekið var upp í stjórn-
ar skrá Kína í fyrsta sinn að með lögum
skuli land byggja . Í langri sögu þjóða rinn ar
hafa það verið lítt heftir duttlungar vald-
haf anna sem réðu . Lagabætur hafa ýmsar
átt stað þ . á m . hefur réttur sakborninga
verið betur tryggður í refsilögum og réttur
kvenna í hjúskaparlöggjöf . Í tengslum við
aðild Kína að Alþjóðaviðskiptastofnun-
inni (WTO) hafa einnig verið gerðar
víð tækar breytingar á löggjöf og reglum
á viðskiptasviði til aðlögunar að kröfum
al þjóða viðskipta .
Staðan í
mannréttindamálum
Það er mat margra sem vel þekkja til að
þró un mannréttindamála í Kína þokist
í rétta átt . Kínverskir ráðamenn bregðast
raunar ókvæða við þegar þeir eru hirtir í
heims press unni fyrir meint mannrétt-
inda brot . En þeir hafa reynst fúsir til að
halda samráðsfundi um fjölmarga þætti
mannréttindamála með fulltrúum vest-
rænna ríkja og stofnana . T .d . hefur Raoul
Wallenberg stofnunin við Lundarháskóla,
sem dr . Guðmundur Alfreðsson veitir
forstöðu, haldið námskeið í Kína með
fulltingi kínverskra stjórnvalda .
Vestræn ríki reyna að sjálfsögðu að
halda því að kínverskum ráðamönnum að
öll mann réttindi séu jafnrétthá og beri að
virða . Þessu er ekki hafnað af kínverskri
hálfu en staðhæft að menning og
þjóðfélagsaðstæður hljóti að ráða nokkru
um framkvæmdina . Þau mannréttindi
sem allir geri fyrst kröfu til að njóta sé
að hafa í sig og á . Ljóst er að kín verskir
ráðamenn telja að algjöru lýðræði að
vestrænni fyrirmynd fylgdi sú áhætta að
allt gæti farið úr böndum efnahagslega og
afkomu þjóðarinnar yrði þar með stefnt
í hreinan voða . Hrun Sovétríkjanna og
þróunin í Rússlandi styrkti með þeim
þessa skoðun .