Þjóðmál - 01.09.2009, Síða 58

Þjóðmál - 01.09.2009, Síða 58
56 Þjóðmál HAUST 2009 Ragnar Jónasson Byggði Agatha Christie sakamálasögu á eigin lífi? Nú í haust kemur í fyrsta sinn í íslenskri þýðingu út ein kunnasta sakamálasaga Agöthu Christie, Five Little Pigs (Minning um morð) . Sagan er í hópi þeirra bóka drottn ingar sakamálasagnanna sem hafa selst hvað best í gegnum árin . Sérfræðingar í verkum Agöthu hafa hrifist mjög af bókinni og því hefur verið haldið fram að ef til vill hafi hún aldrei komist nær því en í þessari bók að skrifa sögu um fyrra hjónaband sitt í formi leynilögreglusögu . Agatha Christie skrifaði alls þrjátíu og þrjár skáldsögur um belgíska leynilög reglu- manninn Hercule Poirot . Þeirra á meðal er Minning um morð, sem kom fyrst út árið 1942 . Enski titillinn, Fimm litlir grísir, vísar til þekktrar enskrar barna gælu sem hljóðar svo: This little piggy went to market. This little piggy stayed at home. This little piggy had roast beef, This little piggy had none. And this little piggy went „Wee! Wee! Wee!“ all the way home. Þetta var hvorki í fyrsta né síðasta sinn sem Agatha Christie nýtti sér barnagælur við val á bókartitlum og má þar m .a . nefna bókina One, Two, Buckle My Shoe (ísl . Tönn fyrir tönn, 1999) sem hafði komið út þremur árum áður . Í Bandaríkjunum fékk Five Little Pigs annað heiti, Murder in Retrospect (Minning um morð), sem þykir að mörgu leyti meira lýsandi fyrir efni bókarinnar, en þar tekur Hercule Poirot að sér að rannsaka morð sem átti sér stað mörgum árum áður en leitað er til hans . Á þýsku heitir bók in Das unvollendete Bildnis (Ófullgerða mál- verkið) . Í fleiri bókum Agöthu Christie eru gömul morðmál til rannsóknar, svo sem í Mrs. McGinty’s Dead (1952; ísl . Á síðustu stundu, 2003) . Rithöfundurinn Charles Osborne, sem ritað hefur mikið um verk Christie, segir m .a . um Minningu um morð: „Þetta er fyrsta og langbesta skáldsagan þar sem Poirot eða annar spæjari er fenginn til þess að leysa glæpamál úr fortíðinni . Tilvísanir til barna gælunnar, sem enski titillinn vísar til [ . . .] eru vandræðalegar og óþarfar; frú Christie kýs að tengja fimm persónur við litlu grísina, með fimm kaflaheitum (6 .–10 . kafli) sem vísa til
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.