Þjóðmál - 01.09.2009, Side 76

Þjóðmál - 01.09.2009, Side 76
74 Þjóðmál HAUST 2009 Margaret Thatcher hefur vakið bæði ást og andúð og er án efa umtalaðasti leið- togi Breta á síðari árum . Fyrir ekki svo löngu síðan var breska sjónvarpsmyndin MARGARET THATCHER – THE LONG WALK TO FINCHLEY (***) sýnd í Ríkis sjónvarpinu . Þar er rakin, á léttan og skemmtilegan hátt, hin þyrnum stráða leið sem Thatcher þurfti að feta til að ná frægð og frama í stjórnmálum . Í mynd inni er Thatcher lýst sem mjög einbeittri, hægrisinnaðri konu sem veit hvað hún vill . Hún sigraðist á miklu mótlæti og komst til metorða í mjög karllægum og íhaldssömum flokki . Stjarna myndarinnar er tvímælalaust leik- konan sem fer með hlutverk Thatchers, Andrea Riseborough . Hún á lof skilið fyrir góðan leik því hún nær talanda og fram komu Thatchers afar vel . Í myndinni er ekki lögð mik il áhersla á pólitíska heimspeki heldur er eink um reynt að draga upp mynd af þeirri mögn uðu persónu sem Margaret Thatcher er . Það geta eflaust allir haft gaman af þessari mynd – hvort sem þeir elska Thatcher eða hata! Thatcher var, eins og kunn- ugt er, lítið gefin fyrir ríkis- afskipti í forsætisráðherratíð sinni . Vorið 1980 var Thatcher spurð í breska þinginu hvort hún ætlaði að beita sér fyrir því að stjórnarformaður BBC upplýsti hvaða þóknun Richard Nixon hefði fengið fyrir viðtal við hann kvöldið áður í sjónvarpsþættinum Panorama . Fyrir spyrjandi minnti á að BBC hygðist leggja niður skosku sinfóníuhljóm sveit ina og spurði hvort forsætisráðherrann væri ekki sammála sér að það væri „hneisa að greiða þóknun, hversu lág sem hún væri, til manns sem væri svo fyrirlit legur og rúinn öllu mannorði“ sem Nixon . Thatcher sagði: „Svarið við fyrri hluta spurn ingar háttvirts Kvikmyndir _____________ María Margrét Jóhannsdóttir Thatcher og Frost/Nixon

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.