Þjóðmál - 01.09.2009, Qupperneq 84
82 Þjóðmál HAUST 2009
mun allt ráða miklu um það hvernig til tekst
að styrkja samkeppnisstöðu Íslendinga á
þessari öld, nýta styrkleika hennar og koma
í veg fyrir hugsanlega einangrun þjóðar-
innar . Þar munu tengslin við Evrópu, efna-
hags stjórnun, gjaldmiðlamál og innganga í
Evrópu sambandið skipta sköpum . Pólitískar
ákvarðanir næstu misserin ráða miklu um
lífskjör Íslendinga næstu árin og áratugina . . .
Öryggismál fólks og þjóða munu taka á sig
nýja mynd í kjölfar hryðjuverka og nýrra við-
horfa til hernaðar, þar sem hryðju verka ár ásin
á World Trade Center og Pentagon markaði
sérstök þáttaskil . Innrásin í Írak, átök fyrir
botni Miðjarðarhafs, pólitísk og hernaðarleg
uppbygging Rússlands, trúar bragða styrj ald ir,
skæð flensuveira, SARS, og svínaflensa eru dæmi
um öryggis- og heilbrigðismál sem jarðarbúar
þurfa að fást við . Það má vel vera að 21. öldin
verði sú öld sem leiði hvað mestar hörmungar yfir
jarðar búa og þá af þeirra eigin völdum .
Undarlegt er, að þarna er hvergi minnst á
breytingarnar, sem eru að verða á norður-
slóðum vegna nýtingar orkulinda á Norð-
ur skautinu eða siglinga í Norður-Íshafi .
Carl Bildt, utanríkisráðherra Svía, hefur oft
sagt að hann muni „selja“ Ísland gagn vart
Evrópu sambandslöndum með því að benda
þeim á, að aðild Íslands opnaði ESB nýja
leið að Norð urskautinu . Ég skáletraði loka-
setn ing una, því að í henni felst dapur leg spá
að nýlokinni öld tveggja heims styrjalda . Til
hvaða framtíðarhörmunga er Þor kell að vísa?
Þorkell telur, að með bankahruninu hafi
Ísland tapað sjálfstæði sínu . Hann segir
(bls . 187): „Þjóðin hefur í raun tapað sínu
fjárhagslega sjálfstæði . Allt tal um sjálfstæði
þjóðarinnar hljómar ótrúverðuglega .“
Þess vegna vill hann að ríkisstjórnin sæki
um aðild að Evrópusambandinu . Hann
telur lífsnauðsynlegt fyrir Ísland að „verða
órjúfan legur hluti af Evrópusambandinu
og þar með alþjóðasamfélaginu .“ Og hann
segir (bls . 188):
Sjálfstæði þjóðarinnar stendur mest ógn af
einhverri ímyndaðri sjálfstæðisbaráttu utan
Evrópu og að við þurfum að ráða yfir okkar
auðlindum til sjávar og sveita . Það voru mikil
vonbrigði þegar Sjálfstæðisflokkurinn tók af-
stöðu gegn aðild að Evrópusambandinu á
síðasta landsfundi flokksins, en rökin voru
talin þau að öfgafullir andstæðingar Evrópu-
aðildar hefðu að öðrum kosti gengið úr
flokknum eða gripið til annarra róttækra
að gerða . Það var ekki hægt að ræða þetta
málefna lega .
Fyrir okkur, sem sátum landsfundinn og
tókum þar þátt í umræðum um Evrópumál,
er með ólíkindum að lesa þennan texta . Þar
er einnig skautað fram hjá þeirri staðreynd,
að hinn 14 . nóvember 2008 var hleypt
af stokkunum Evrópuumræðum innan
Sjálf stæðisflokksins, sem stóðu fram að
lands fundi í lok mars 2009 með þátttöku
hundraða ef ekki þúsunda flokksmanna .
Sjónarmið skoðanabræðra Þorkels urðu
einfaldlega undir í þessum umræðum .
Að segja þær hafa einkennst af hótunum
um úrsögn úr flokknum af hálfu þeirra,
sem eru andvígir aðild, er umsnúningur á
staðreyndum . Nokkrum dögum fyrir kosn-
ingar gerðu aðildarsinnar innan flokksins
aðför að samstöðu innan hans með herferð
undir kjörorðinu sammala.is og eftir kosn-
ingar hóta þeir að stofna nýjan flokk, ef
þingmenn flokksins ganga á svig við sam-
þykkt landsfundar . Þá hafa sumir þeirra
viðurkennt á opinberum vettvangi að hafa
ekki kosið flokkinn í þingkosningunum
heldur Samfylkinguna .
Þorkell gefur ekki mikið fyrir yfirráð Ís-
lendinga yfir auðlindum sínum og hann
lætur hjá líða að ræða geópólitískar stór-
breytingar á norðurslóðum, þegar hann
spáir einangrun Íslands á alþjóðavettvangi .
Þá minnist hann til dæmis ekki á alþjóða-
lega glæpastarfsemi, þegar hann ræðir
öryggismál . Við mótun framtíðarsýnar
sinnar hefði Þorkell átt að leita víðar fanga
en í skugga Evrópusambandsins .