Gerðir kirkjuþings - 01.01.2013, Side 32
32 33
slík námskeið verði skylda fyrir alla þá sem starfi í æskulýðsstarfi innan kirkjunnar og
jafnframt skuli þeir sækja endurmenntunarnámskeið á tvegga til þriggja ára fresti. Að
eineltisfræðsla verði hluti af farskóla leiðtoga, öðrum leiðtogaskólum á vegum kirkjunnar
og endurmenntun eldri leiðtoga. Að kirkjan gefi út fræðslubækling um einelti sem hægt er
að nota á æskulýðsfundum. Að gefinn verði út fræðslubæklingur fyrir leiðtoga og foreldra
þátttakanda í æskulýðsstarfi þar sem aðgerðaráætlun kirkjunnar er kynnt. Að kirkjan tryggi
að gerendum standi til boða sama aðstoð og þolendum eineltis. Að starfsfólk kirkjunnar sé
meðvitað um það að gerendur eigi einnig erfitt og þurfi á hjálp að halda. Kirkjuþing unga
fólksins skorar á kirkjuna að koma aðgerðaráætlun sinni í gang strax í upphafi næsta árs,
eigi síðar en 1. mars 2013.“
2. mál. Ályktun um mikilvægi kirkjuþings unga fólksins
Við erum þau sem munum taka við. Breytingarnar hafa áhrif á okkur.
1. gr. Hugmynd að þingið sé lengt í 23 daga (yfir helgi). Ítreka það að þingið á að vera
á vori því þá er hægt að fara yfir það sem betur mátti fara á liðnu ári og mál hafi þá
möguleika að komast á stóra þingið sama ár.
4. gr. Ábyrgðarmaður æskulýðsstarfs, prestar og prófastar verði ábyrgir að vali fulltrúa,
jafnframt ættu áhugasamir að bjóða sig fram. Bæta inn í starfsreglur að fulltrúar sitji
í tvö ár, með varafulltrúa ef forföll verða. Jafnframt finnst okkur vera mikilvægt að
skipta út fólki, þó ekki öllum á sama tíma. – hugmyndin er að um helmingur hætti og
helmingur sitji áfram.
5. gr. Helgistund í meira hæfi unga fólksins, mögulega fá unga fólkið til að hjálpa við
helgistundina. 6. gr. Útskýra hlutverk áður en kosið er, verður að vera reynsla hjá
forseta.
7. gr. Málin skulu hafa borist þingfulltrúum a.m.k. viku fyrir þing. Í þremur þingnefndum
mega mest vera 6. 1 ábyrgðarmaður og ekki fleiri en 5 í viðbót. Formaður nefndar á að
vera kosinn og svo er kosinn ritari innan nefndarinnar. Formaður þarf ekki endilega að
tala og formenn bjóða sig fram svo fleiri fái hlutverk.
8. gr. Þrír fulltrúar kirkjuþings unga fólksins inn á almenna kirkjuþingið, lýðræðislega
kosnir og fá atkvæðisrétt innan þingsins. Sá sem útskýrir þingið þarf að vera með stutta
og hnitmiðaða útskýringu, segir einnig stuttlega frá síðasta þingi. (Forseti KUF) Síðan
þarf kannski farandsæskulýðsfulltrúa til að vekja landsbyggðina í frekara unglingastarf.
Þeir sem bera ábyrgð, fulltrúar sem eru kosnir af KUF til að fara á kirkjuþing fylgja því
svo lengra ef þörf er á. Efni þarf að vera aðgengilegt sem talað er um á þinginu.
3. mál. Ályktun um mikilvægi skimunar starfsfólks í kristilegu æskulýðsstarfi og um mikilvægi
þess að farið sé eftir siðareglum í kristilegu barna- og unglingastarfi
Kirkjuþing unga fólksins krefst þess að undantekning um 217 gr. almennra hegningarlaga
verði tekin úr samþykki fyrir öflun upplýsinga úr sakaskrá. Ef horft er til KFUM&K, ÍTR,
og fleiri stofnana er skimun þeirra er ítarlegri og er þar beðið um leyfi til upplýsingaöflunar
úr Sakaskrá ríkisins en ekki er horft til brota á ákveðnum lagagreinum. Þjóðkirkjan er eina
stofnunin sem starfar á æskulýðsvettvangi sem gerir slíka undantekningu og þykir okkur
það vera mikil skömm að slíkt skuli líðast hjá stofnun sem við teljum að ætti að vera fordæmi