Gerðir kirkjuþings - 01.01.2013, Side 35

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2013, Side 35
35 3. gr. hljóði svo: Biskupsstofa annast undirbúning kirkjuþings unga fólksins í samvinnu við stjórn ÆSKÞ sem kýs verkefnisstjóra til að annast framkvæmd þingsins. 4. gr hljóði svo: Fulltrúarnir skulu vera á fjórtánda ári og allt upp í 30 ára og skráðir í þjóðkirkjuna. Prófastar beri ábyrgð á tilnefningum og vali fulltrúa á kirkjuþing í samvinnu við sóknarpresta, presta, djákna. æskulýðsfulltrúa og aðra sem bera ábyrgð á kirkjustarfi í hverju prófastdæmi. Hafa allir fyrrnefndir aðilar rétt til að tilnefna fulltrúa á kirkjuþing og því ber að senda öllum þessum bréf frá biskupi þegar boðað er til Kirkjuþings unga fólksins til að allir aðilar séu upplýstir um stöðuna. Það er í höndum prófasts að velja úr tilnefndum ungmennum og tilkynna valda fulltrúa til verkefnastjóra KUF. Komi ekki tilnefningar úr héraði a.m.k sex vikum fyrir þingdag frá próföstum skal vísa því til verkefnisstjóra kirkjuþings að tilnefna ungmenni úr héraði. Skulu fulltrúar KUF vera valdir til tveggja ára. Geti fulltrúi ekki komist á kirkjuþing af einhverjum orsökum verður nýr fulltrúi valinn í hans stað sem situr þá til tveggja ára. Boða skal til kirkjuþings í síðasta lagi tveimur mánuðum fyrir upphaf kirkjuþingsins. Verkefnisstjóra KUF ber að tilkynna völdum þingfulltrúum um rétt sinn til setu á kirkjuþingi unga fólksins 4 vikum fyrir þingdag. 7. gr. hljóði svo: Fulltrúum ber að skila inn þingmálum til verkefnisstjóra KUF og Biskupsstofu a.m.k. 10 dögum fyrir þingdag. Þessum aðilum ber að koma málum fullunnum til þingmanna í síðasta lagi fimm dögum fyrir þingdag. 10. gr hljóði svo: Starfsreglur þessar sem settar eru með heimild í 59. gr laga um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, öðlast gildi 1. janúar 2014.“ Málið er til umfjöllunar á kirkjuþingi 2013. „2. mál. Ályktun um kjör ungmenna til setu á hinu almenna kirkjuþingi. Ungmenni hafa sterk orð innan kirkjunnar, einkum með hinum ýmsu ungmennaráðum sem hefur verið komið á fót. Kirkjuþing unga fólksins vill sjá að þjóðkirkjan taki ungmennalýðræði innan kirkjunnar á annað stig og gefi ungmennum möguleika á að sitja á kirkjuþingi, með málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt. Það er ósk okkar að kirkjan skoði að breyta þessu og leggi málið fyrir hið almenna kirkjuþing haustið 2013 og breyti starfsreglum um kjör til kirkjuþings nr. 301/2013 til samræmis við tillögu þessa. Kirkjuþing unga fólksins skal í lok þingsins kjósa þrjá fulltrúa á kirkjuþing með málfrelsi tillögurétt og atkvæðisrétt og tvo til vara.“ Kirkjuráð telur að ekki skuli fjölga fulltrúum á kirkjuþingi. „3. mál. Ályktun um réttindi ungleiðtoga. Kirkjuþing unga fólksins 2013 fer fram á að leiðtogar þjóðkirkjunnar fái trúnaðarmann/ menn.“ Málið er í vinnslu á Biskupsstofu.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.