Gerðir kirkjuþings - 01.01.2013, Side 81
81
Þessi misjafna dreifing breytist ekki mikið þótt horft sé til fjölda sóknarbarna í stað íbúa
að baki hverju embætti.
Fjölmennustu prestaköll landsins sem hafa yfir 5000 sóknarbörn eru þessi:
Sóknarbörn Íbúar Hlutfall Prestaköll
14.094 17.934 78,6% Grafarvogsprestakall
11.400 13.867 82,2% Garðaprestakall
10.196 12.206 83,5% Lindaprestakall
9.047 10.306 87,8% Akureyrarprestakall
8.680 14.034 61,8% Hafnarfjarðarprestakall
8.099 10.453 77,5% Árbæjarprestakall
7.333 9.024 81,3% Mosfellsprestakall
7.331 10.828 67,7% Nesprestakall
6.669 7.392 90,2% Glerárprestakall
6.580 8.703 75,6% Digranesprestakall
6.102 7.134 85,5% Selfossprestakall
6.098 7.698 79,2% Keflavíkurprestakall
5.870 8.110 72,4% Seljaprestakall
5.811 6.677 87,0% Garðaprestakall á Akranesi
5.778 9.132 63,3% Háteigsprestakall
5.457 8.336 65,5% Tjarnaprestakall
5.316 6.971 76,3% Bústaðaprestakall
5.124 6.535 78,4% Njarðvíkurprestakall
Í flestum þessum prestaköllum eru starfandi tveir prestar. Áður var bent á fimm ein menn
ings prestaköllin sem eru neðst á þessum lista og eru öll á þéttbýlisstöðum.
Samkvæmt tillögum nefndarinnar ber að stefna að því að ekkert prestsembætti þjóni
fleirum en 5000 sóknarbörnum, þar sem því verður við komið. Því er nauðsynlegt að
bæta sem fyrst álagið sem hvílir á prestum sem starfa í þessum prestaköllum og auka
við þjónustuna með prestum, í fullt starf eða hlutastarf. Það er hins vegar ekki hlutverk
nefndarinnar að útfæra það nánar. Skoða mætti að færa til þá presta, þar sem embætti
væru sameinuð vegna fámennis eða af öðrum ástæðum og fela þeim þjónustu þar sem
auka þarf prestsþjónustuna.
Þá er það tillaga nefndarinnar að þar sem sóknarbörn í prestakalli eru innan við 500 og
tryggja má prestsþjónustuna með þjónustu prestanna á samstarfssvæðinu, er í hag ræð ing
ar skyni óhjákvæmilegt að fækka þeim prestaköllum og leggja niður prests embætti. Hér
telur nefndin það heldur ekki vera sitt hlutverk að segja til um hvernig verði staðið að því.
Þar mætti nota þá leið og bent er hér að framan, að færa presta til, þar sem því verður við
komið og allir sem málið varðar væru sáttir við þá málsmeðferð.