Orð og tunga - 01.06.2008, Blaðsíða 90
80
Orð og tunga
andi. Þar gæti verið um prentvillu að ræða eða pennaglöp (klömbrunni
fyrir klömbrinni). En það gæti líka verið ósvikið merki þess að orðið
klambra hafi verið komið í notkun, sbr. þau ummæli Páls Bjamarsonar
að það orð leitaði á um hans daga á kostnað orðsins klömbur (sjá 2.2).
4.2.3 Merkingin 'klemmitöng'
Páll Bjarnarson (1921-1923:277-278) notar tvívegis orðin klambra og
klömbrur jöfnum höndum um smíðatöng, sbr. tilvitnun hér á undan
(sjá 3.1). Nú er vitað um tvö dæmi til viðbótar um eintöluorðið í þess-
ari merkingu. Annað má teljast frá 1927 en hitt frá miðri 20. öld, þegar
slíkir gripir voru orðnir úreltir.
Lítum fyrst á síðarnefnda dæmið. Það er á orðabókarseðli í tal-
málssafni OH, þar sem Jakob Benediktsson hefir skrifað lýsingu á
klömbrum eftir Eyjólfi Guðmundssyni (1870-1954), bónda á Hvoli í
Mýrdal.35 Eyjólfur hefir jafnframt skýrt frá samsettu orðunum klömbru-
matur og klömbrumunni, en óvíst er um aldur þeirra eða útbreiðslu. Það
sem Eyjólfur kallar klömbrumat (eða mat) er fieygur sá sem áður hét
klambrarveggur, og klömbrumunni er sá endi á klömbrinni sem hélt
viðfangshlutnum föstum. Þessi orð eru að öðru leyti óþekkt. Líkleg-
ast eru þau staðbundin og ekki til komin fyrr en orðið klömbrur (ft.)
hafði tekið við því hlutverki sem klömbur (et.) hafði áður og klömbru-
orðinn nærtækur forliður, sbr. dæmið um samsetta orðið klömbrukjálki
(sjá 3.2.2).36
Hitt dæmið kom ekki upp í hendurnar á mér fyrr en þessi ritgerð
var nærri fullsamin. Hans Kuhn (1899-1988), síðast prófessor í Kiel,
ferðaðist ungur um ísland þvert og endilangt og safnaði gömlum og
úreltum nytjahlutum sem fólk var þá sem óðast að farga. Þessa muni
flutti hann til Þýskalands þar sem þeir eru varðveittir á Þjóðfræða-
safninu í Hamborg (Hamburgisches Museum fur Völkerkunde und
35Flettiorðið á seðlinum er „klömbrur, f. pl.", en á einum stað í lýsingunni er orðið
notað í eintölu („Leit þá klambran út þannig"). - Á öðrum seðli í talmálssafninu er
lýsing á klömbrum, rituð eftir Steinþóri á Hala (d. 1981), dagsett 6. mars 1978. - Þessum
hlutum hefði ekki þurft að lýsa, eins og gert var, ef alkunnir hefðu verið. Þeir hafa
horfið úr notkun snemma á 20. öld og víða fyrr.
36Reyndar hafa mörg önnur tangarheiti sést, sum búin til af fræðimönnum til skýr-
ingar. Meðal þeirra sem orðið hafa á vegi mínum og hafa a.m.k. svipaða merkingu
og tdömbur erw.fasthelda, haldóra, haldstokkur, handskrúfstykki, klemmitöng, klofatöng. Sjá
einnig 3.2.1.