Skagfirðingabók - 01.01.2016, Síða 9
KAUPMANNSHJÓNIN Á SAUÐÁRKRÓKI
9
Göfugra en kóngshöll
gerist hvert hreysi,
kærleiksrík kona
kyrrlát sem þú.
Bóndi þinn, börnin
bær vor og hérað
þakka nú dáð þína
dygðir og trú.
Sjálf hafði María gaman af að kasta fram
stökum. Í bréfi til barnabarns, Einars
Olgeirssonar, sem nýfarinn var utan
til náms, er þessi vísa, líklega frá árinu
1921:
Í fjarlægt land þú farinn er,
fyrr en nokkurn varði
og þar gæfu árnar þér
amma þín í Barði.
Haraldur hélt upp á vísu sem María orti
þegar hún flutti föggur sínar úr gamla
bænum í timburhúsið, af moldargólfi á
hvítskúraðar fjalir:
Þó að standi stoðin ber
og stikli ég á grjótum,
margar tylftir tára hér
treð ég undir fótum.
Systkin Haraldar voru Olgeir (1871–
1943), Jóhannes (1874–1948), Vil-
hjálmur (1880–1971), Kristrún (Rúna
í Barði) (1882–1966), Þorgerður
(1886–1941), Jakobína (1889–1968)
og Friðrik (1895–1970); einn dreng
misstu þau í æsku; allar systurnar voru
ógiftar og barnlausar. Júlíus drýgði
tekjur sínar með því að halda sauðfé,
sbr. auglýsingu í Akureyrarblaði: Sauðfé
„Akureyrarmanna og frá Eyrarlandi,
Barði og Kotá verður tekið á Glerárdal
í sumar með því skilyrði, að fjáreigendur
auk hagatolls borgi kostnað og sektir fyrir
sauðfé sitt, gangi það ofan fyrir línu þá, er
til er tekin í lögreglusamþykkt Akureyrar
… Semja má við Júlíus Kristjánsson í
Barði umráðamann afréttarinnar um
upprekstur á dalinn. Eyrarlandsnefndin“
(Stefnir 21. maí 1901).
Þau Júlíus og María í Barði höfðu
ekki úr miklu að moða fremur en þorri
alþýðumanna um aldamótin 1900.
Barð, húsið sem Olgeir Júlíusson keypti
af dönskum vísindamönnum laust eftir
aldamótin 1900. Myndin er tekin til norð-
austurs og t.v. er girðingin um gagnfræða-
skólann, síðar Menntaskólann á Akureyri.
Þessi mynd er tekin nokkru síðar, runnar
sunnan undir húsi teygja úr sér.