Skagfirðingabók - 01.01.2016, Blaðsíða 27
KAUPMANNSHJÓNIN Á SAUÐÁRKRÓKI
27
Annars var þetta samfleytt ævintýri.
Við Haraldur fórum í fótbolta og
eignuðumst góða vini í Út-Króknum.
Stráka sem við þekkjum enn í dag og
eigum enn til vináttu að telja með þeim.
Það létti auðvitað heilmikið á að ég
fór fljótlega fram í Syðra-Skörðugil til
sumardvalar hjá Dúdda frænda mínum
[Sigurjóni M. Jónassyni] og Sigrúnu
[Júlíusdóttur] konu hans. Haraldur var
þar einnig og Helga frænka mín mikið
frammi í Litlugröf.“
Annasamt var kringum búðina og
bar ýmislegt til, en raskaði samt ekki
hefðbundnum slætti daganna. Einar
Kristinn: „Heimilishaldið einkenndist
af mikilli reglufestu. Afi fór hvern dag
snemma til vinnu sinnar. Hann settist
við skrifborðið og undirbjó daginn. Á
slaginu kl. 9 var búðin opnuð. Bjarni og
afi réðu auðvitað för, en öll sumrin þegar
ég var fyrir norðan voru þeir feðgar með
starfsfólk í búðinni, enda í nógu að snúast.
Búðin, olíuumboðið, umboðsverslun
fyrir Hamar (Deutz dráttarvélar o.fl.) og
fleiri fyrirtæki og svo auðvitað bílarnir
sem Bjarni sá um. Rúturnar stoppuðu
við verslunina og búðin var eins og
hálfgerð umferðarmiðstöð. Farþegarnir
biðu í búðinni og voru oftar en ekki
drifnir inn í kaffi til ömmu og mömmu.
Afi sat við skrifborð sitt og annaðist
útreikninga fyrir verslunina og annað
sem henni var viðkomandi. En hann
brá sér einnig fram í búð og afgreiddi.
Amma var líka talsvert í búðinni, fylgdist
með að allt færi vel fram, skipulagði
uppsetningu í hillum, lagði á ráðin um
innkaup og gætti þess að allt væri í röð
og reglu, hreint og strokið.“
Árið 1970 greindist Guðrún með
krabbamein í maga; Bjarni faðir hennar
lést af þeim sjúkdómi. Hún hafði um
skeið kennt sér meins, en það var ekki
greint fyrr. Hún gekkst undir erfiðan
uppskurð í Reykjavík í september og
kom norður þegar hún hafði jafnað sig,
en lá að mestu á sjúkrahúsinu. María
dóttir hennar kom margsinnis norður
og þá kom Guðrún heim og naut þess.
Haraldur, Bjarni og barnabörnin gerðu
og hvað þau gátu til að létta henni leguna.
Guðrún lést 8. september 1971, 74 ára
Gunnar Haraldsson, síðar bóndi á Bálka-
stöðum í Hrútafirði, stendur hér við K 24,
Ford ´31 árgerð sem hann ók fyrir Bifreiða-
stöð Skagafjarðar. Bak við bílinn sér í þak
og efrihluta NAFTA skúrsins þar sem var
bensíndæla. Síðar fékk Ísleifur Gíslason
kaupmaður þennan skúr og flutti hann suður
að Sævarstíg og verslaði þar, en á stríðsárunum
höfðu Bretar aðsetur fyrir vaktmenn í skúrn-
um. Verslun Haraldar á miðri mynd og
bensíndæla BP komin á sinn stað. Sláturhús
Steindórs Jónssonar lengst t.v. Til hægri sér
í endann á Bræðrabúð og bak við hana er
sláturhús Kristjáns Gíslasonar kaupmanns.
Húsið sem ber í sláturhúsið aftan við bílinn
var notað sem rétt fyrir sláturfé, en síðar sem
þurrkhjallur.