Skagfirðingabók - 01.01.2016, Page 28
SKAGFIRÐINGABÓK
28
að aldri og var jarðsungin 18. september
að viðstöddu fjölmenni. „Með Guðrúnu
Bjarnadóttur er gengin merk kona og
mikilla mannkosta, kona sem var vel
látin og vinsæl og mikils metin af öllum
sem henni kynntust. Hún var prýðilega
greind kona, háttprúð og hógvær í öllum
framgangi. Góðvild hennar, alúð og
hlýleikur fékk engum dulist,“ sagði sr.
Gunnar í minningarorðum sínum.
IV
EN HVERNIG þróuðust svo verslunar-
hættirnir? Bjarni Haraldsson lýsir því:
„Framan af seldust mest smávörur og
vefnaðarvörur í búðinni, seinna herraföt,
nærföt, náttföt, vinnuföt, sælgæti,
tóbak, hreinlætisvörur, olíur, bensín
auk varahluta í vélar og bíla. Verslunin
var einnig með allskyns nýlenduvörur
á boðstólum, svo sem matvörur í
pakkningum. Flest allt til verslunarinnar
var keypt að sunnan eða norðan. Fyrir
utan tóbak var salan lengst af mest í
María með myndarlegan blómvönd. Mynd-
in er tekin bak við Erlendarhús við Lindar-
götu, þar sem Guðrún hafði garð.
Púlt Haraldar sem stóð á búðarborði í
öndverðu. Bjarni og María ákváðu að gefa
Einari Kristni Guðfinnssyni púltið. „Ég lét
pússa það aðeins upp og fékk smið í Bolungar-
vík til þess að smíða undir það fætur. Púltið
eignaðist ég um miðjan áttunda áratuginn.
Það hefur fylgt mér eftir það og jafnan staðið
á góðum stað á heimilum mínum.“