Skagfirðingabók - 01.01.2016, Page 34
SKAGFIRÐINGABÓK
34
Úr Verzlun H. Júlíussonar. Eikarmálaðar skúffur á suðurvegg blasa við.
Vigtin frá 1941 er á borðsendanum og t.v. eru dyrnar niður í kjallarann.
áhugi á verslun og viðskiptum ásamt
góðmennsku, velvild og takmarkalausri
hjálpsemi. Og það var eins með Guð-
rúnu, hún gaukaði ósjaldan að fólki,
eða sendi því það sem hana grunaði að
það væri í þörf fyrir, en aðstæður gátu þá
verið misjafnar hjá fólki eins og nú vill
vera. En þau höfðu ekki hátt um þessa
hluti, þeir fóru fram í kyrrþey, það var
þeirra venja og lýsir góðmennsku þeirra
og hjálpsemi og það var þeim hjónum
mikils virði að geta rétt þeim hjálpar-
hönd sem á þurftu að halda.
Það var í mörg horn að líta í
Verzlun Haraldar Júlíussonar, þar voru
bökunarvörur, pottar, pönnur, gjafa-
vörur, föt, skófatnaður, tóbak, gos-
drykkir, hreinlætisvörur, snyrtivörur,
niðursuðuvörur og svo ótal margt
fleira, og ekki má gleyma harðfiskinum
að vestan sem margir töldu algjörlega
ómissandi og jafnvel að menn töldu
að hann hefði lækningamátt. Síðan var
bensín- og olíusalan fyrir BP og ýmsar
vörur sem því tengdust svo sem smur-
olíur og fleira. Á þessum árum var
Bjarni einnig með vöruflutninga milli
Sauðárkróks og Reykjavíkur. Þarfir