Skagfirðingabók - 01.01.2016, Page 39
KAUPMANNSHJÓNIN Á SAUÐÁRKRÓKI
39
til ýmissa aðila sem komu með e/s Novu
til Sauðárkróks 24. júlí 1929 og vörur
til og frá Króknum 3. október sama ár.
Nova sigldi hingað á vegum Bergenska
gufuskipafélagsins og varð frægt skip
vegna verkfallsátaka á Akureyri 1935
sem kennd voru við skipið, Novudeilan.
Þessi starfsemi teygir sig inn á árið
1934. Einnig hefur hann fært í bók
viðskiptareikning gufuskipafélagsins
frá 1929 fram á árið 1937, þótt ekki sé
þess getið hvaða skip höfnuðu sig þá á
Króknum. Hann fær umboðslaun frá
Bergenska, hlutfall af farmgjöldum allt
frá 20–50 kr. á ári upp í mörg hundruð
þannig að umstangið skilaði krónum í
kassann.
VII
HARALDUR hóf samstarf við Olíuverslun
Íslands árið 1932, löngum nefnd ein-
ungis BP. Samninginn undirrituðu
Héðinn Valdimarsson forstjóri og
Haraldur þann 27. ágúst 1932 og er hann
nokkuð ítarlegur; hugsanlegt er að sala
eldsneytis hafi byrjað áður en samningur
var undirritaður. Olíufélagið réð verði og
óheimilt var að lána eldsneyti; slíkt var
fullkomlega á ábyrgð söluaðila. Haraldur
fékk þrjá aura í umboðslaun fyrir hvern
seldan lítra, en 10% af söluverði hvers
lítra af smurolíu. Bensínlítrinn kostaði
þá 37 aura en smurolíulítrinn 90 aura.
Eldsneytisdæla var sett upp við búðina
en smurolían kom í tunnum sem komið
var fyrir í kjallaranum og var tappað af
þeim í pjáturkönnur og hellt á vélarnar.
Olíufélagið reisti síðar birgðastöð úti á
Eyri 1945 og þangað réðst Friðrik bróðir
Haraldar og starfaði þar uns hann lét af
störfum fyrir aldurs sakir. Hann kom frá
Siglufirði og bjó yst við Freyjugötu, við
bakka Sauðár. Þeir bræður áttu tún uppi
á Nöfum, bak við innsiglingarmerkið ef
menn horfa af Kirkjutorgi þangað upp
núna. Þeir áttu sína kúna hvor í fjósi
utan við íbúðarhús Friðriks og Haraldur
lét sér í léttu rúmi liggja þótt Friðrik og
Fjóla kona hans fengju alla mjólkina,
enda voru þar ótal börn í húsi. Friðrik
er rosknum Króksurum minnisstæður.
Hann fór oft í bíó, einn örfárra full-
orðinna manna, var um áratugaskeið
hvíslari hjá leikfélaginu – og forvitinn
umfram flesta. Í stríðslok var hann
túlkur fyrir hermenn og reyndi þá jafnan
að beina viðskiptum þeirra til Haraldar
bróður síns.
Raflýsing þekktist ekki í dreifðum
byggðum á þessum árum og haust
hvert fór bíll í hverja sveit með steinolíu
til ljósa. Bændur áttu steinolíulampa
og létu fylla á tunnur fyrir veturinn.
Veigamesti þátturinn í olíusölunni var að
Friðrik Júlíusson bróðir Haraldar fluttist á
Krókinn frá Siglufirði og var hæstráðandi í
olíubirgðastöð BP. Ljósm.: Haraldur Friðriksson.