Skagfirðingabók - 01.01.2016, Page 41
KAUPMANNSHJÓNIN Á SAUÐÁRKRÓKI
41
undir lok sjöunda áratugarins: „Hann
segir þennan tíma hafa verið sérstaklega
þroskandi. Ekki hafi heldur verið hægt
að kvarta undan einhæfni starfa. Frá því
að dæla bensíni og redda smurolíu á bíl
var næsta verk kannski að rífa upp 50
kílóa hveitisekk og vigta upp úr honum
í tveggja kílóa pakkningar og svo að
skjótast í afgreiðslu inn á milli þar sem
einhvern vantaði vinnuskyrtu eða pakka
sem hafði komið með flutningabílnum
að sunnan kvöldið áður.“ (Vefsíða.)
Bensíndælan á búðarhlaðinu olli
stundum ónæði þegar menn bönkuðu
uppá löngu eftir lokunartíma. Hús-
ráðendur leystu oft úr vanda, jafnvel
fram á nótt, en „stundum varð maður
bara að sofa svo fast að maður heyrði
ekkert,“ segir Bjarni.
Í gögnum frá Haraldi Júlíussyni er bréf
sem hann skrifaði 27. september 1962
til stjórnar Fiskivers hf á Sauðárkróki.
Þá hafði fyrirtækið stofnað til skuldar
vegna olíukaupa upp á hartnær 300
þús. krónur sem var mikið fé. „Ég vil
taka fram,“ segir Haraldur „að ég ber
algjörlega ábyrgð á að skuld þessi verði
greidd með því Olíuverslunin hefur
margtekið fram að ég megi ekki lána
olíu. … Að skuldin varð svo há sem að
ofan greinir [kr. 286.297.35] stafar af
að ég trúði á gefin loforð, og vildi ekki
þurfa að stöðva rekstur Fiskivers fyrr en
allt þryti og svipta með því tugi manna
góðri atvinnu.“ Ekkert gerðist í kjölfar
þessa bréfs þannig að Haraldur setur
fyrirtækinu skýra kosti með stuttu bréfi
3. desember. Nú er ekki ljóst hvernig
þessu máli reiddi af, en Bjarni telur að
bærinn hafi að einhverju leyti hlaupið
undir bagga, en ei að síður hafi Haraldur
tekið nokkurn hluta á sínar herðar.
VIII
BJARNI Haraldsson hefur í huga Króks-
ara alltaf verið hluti af Verzlun Haraldar
Júlíussonar, ef svo má segja. Og í ljósi
samvinnu við Byggðasafnið segja
gárungarnir að Bjarni sé eini friðaði
kaupmaðurinn á landinu. Bjarni fékk
ólæknandi bíladellu í æsku. Hann
eignaðist snemma forláta leikfangabíl
sem vakti öfund drengja sem sáu og
International vörubifreið, árgerð ´47, K 24,
sem Guðrún og Haraldur gáfu Bjarna í af-
mælisgjöf þegar hann lauk bílprófi 1948, en
þá hafði Bjarni ekið bíl í mörg ár.
Bjarni í vegagerð með Internationalinn í
Norðurárdal milli Kota og Silfrastaða árið
1949. Marínó Sigurðsson á Álfgeirsvöllum
t.v. og Gunnar Egilsson á ýtunni t.h.