Skagfirðingabók - 01.01.2016, Page 49
KAUPMANNSHJÓNIN Á SAUÐÁRKRÓKI
49
Pálsson kom þar að, unglingsstrákur.
„Viltu að ég bakki bílnum, Haraldur?“
spurði Brynjar. Haraldur horfði á hann
andartak, en kom svo út úr bílnum og
Brynjar settist inn og bakkaði út. „Þakka
þér fyrir, vinskapur,“ sagði Haraldur og
gaf stráknum túkall.
Ofangreind lýsing á athafnasemi
Haraldar sýnir að hann hafði ekki ein-
ungis vakandi auga á eigin rekstri,
heldur öllu því sem til hagsbóta horfði
í samfélaginu. „Ævistarf Haraldar Júlíus-
sonar var verslunarstarf, en þessi mikli
starfsmaður kom víðar við og hafði mikil
afskipti af atvinnu- og félagsmálum
í byggðarlagi sínu,“ sagði sr. Gunnar
Gíslason í útfararræðu. Samferðamenn
treystu honum til góðra verka, því að í
fari hans fóru saman íhygli, útsjónarsemi,
alúð og áræði.
X
HARALDUR var einn af stofnendum
Rótarýklúbbs Sauðárkróks 1948 og
mætti þar samviskusamlega á fundi.
Klúbbfélagar hafa haldið úti tímariti sem
heitir Rafpósturinn þar sem þeir skiptast
á að skrá hugleiðingar sínar og lesa þær
upp á fundum. Svo virðist sem Haraldur
hafi hliðrað sér hjá að skrifa í blaðið,
enda ekki gefinn fyrir að trana sér fram.
Hann er þó höfundur eins pistils sem
sýnir að hann hefur haft fágaða, en þó
beitta kímnigáfu. Þessi pistill er skráður í
vikunni 18.–25. maí 1967:
„Þau helstu tíðindi sem ég veit um
eru að bæjarstjórn Sauðárkróks efndi
til hátíðarfundar í Bifröst 24. maí
við látlausa viðhöfn í tilefni af 20 ára
kaupstaðarréttinda staðarins. Voru borð
Útsýnið af hótelsvölum í Glasgow er allt öðruvísi en við Aðalgötu 22!