Skagfirðingabók - 01.01.2016, Page 62
62
HJALTI PÁLSSON FRÁ HOFI
HREYSTIVERK Á HOLTAVÖRÐUHEIÐI
MANSI HAFÐI veturinn áður farið á ver-
tíð syðra eins og títt var um unga menn
á Norðurlandi á þessum árum. Um
vorið kom hann norður á bíl, gömlum
Morris sem hann hafði keypt fyrir
vertíðarlaunin, eða hluta þeirra. Hann
fékk skrásetningarnúmerið K-401. Ekki
átti hann þann bíl lengi því að um sumarið
skipti hann við Konráð Þorsteinsson
athafnamann á Sauðárkróki og fékk í
staðinn Willys-jeppa af árgerðinni 1942.
Bar sá skrásetningarnúmerið K-58.
Hafði Konráð sjálfur, að talið var, smíðað
hús á þennan bíl og var það víst ekki að
öllu leyti fullkomið. Þessi var farkostur
þeirra þremenninga í ferðinni.
Sagan hefst þegar Mansi og Gísli í
Þúfum komu um morguninn í hlað
á Miklabæ til að taka Leif. Bíllinn
var þá þegar orðinn býsna hlaðinn
af ýmsum farangri, því að Mansi var
FIMMTUDAGINN 15. desember 1960 lögðu þrír ungir menn úr Óslandshlíð af stað heiman frá sér og
hugðust ná til Reykjavíkur um kvöldið. Þeir voru Hartmann Hofdal Halldórsson á Melstað, fæddur
20. maí 1940, d. 16. nóvember 2001, og gekk jafnan undir gælunafninu Mansi eða Mansi á Melstað.
Hann átti kærustu í kvennaskóla fyrir sunnan og ætlaði að sækja hana fyrir jólin. Farþegi var Gísli
Óskarsson frá Þúfum, f. 18. maí 1932, d. 25. mars 2013. Hann gekk alla ævi undir kenningarnafninu
Gísli í Þúfum. Gísli var tröllvaxinn maður, lundgóður en feitlaginn nokkuð og vissi ekki afl sitt. Erindi
hans til Reykjavíkur var að komast í læknisskoðun vegna fóta sinna. Annar farþegi og þriðji maður
var Halldór Þorleifur Ólafsson á Miklabæ, f. 20. desember 1934. Hann var þá ásamt föður sínum að
byggja fjós og hlöðu og hugðist nýta Reykjavíkurferð til að ganga frá pappírum vegna lánafyrirgreiðslu.
Hann hefur alltaf gegnt nafninu Leifur á Miklabæ.
Við lestur eftirfarandi frásagnar má gjarnan hugleiða öll þau smáatriði sem skiptu sköpum
hvernig atburðir urðu. Í fyrsta lagi það sem stuðlaði að óhappinu. En ekki síður hitt sem varð þess
valdandi að ekki fór verr og allir björguðust. Í versta falli hefðu þeir allir farist í slysinu og enginn
vafi að með hreysti sinni bjargaði Gísli Óskarsson báðum félögum sínum til lífs.
Jeppabíllinn K-58 heima við hús á Melstað.
Eigandi myndar: Guðný Sturludóttir.