Skagfirðingabók - 01.01.2016, Síða 71
71
HANNES HANNESSON MELBREIÐ Í FLJÓTUM
BROT ÚR ÆVI
Hjálpaðu þér sjálfur,
þá hjálpar þér guð
ÞETTA ER er enginn ævisaga, ekki einu
sinni brot af ævisögu, heldur aðeins
brotabrot af striti vesalings hreppsómaga
fyrir andlegu brauði á unglingsárunum.
En til þess að gera þessi brotabrot
skiljanlegri, verð ég að segja í stórum
dráttum frá uppvexti mínum í bernsku
og öðrum aðstæðum á unglingsárum.
Ég er fæddur að Hafsteinsstöðum í
Skagafirði 25. mars 1888 að sögn,
skírnarvottorð fyrirfinnst ekki. Það
þóttu ekki svo merkir atburðir í þá
tíð, þó fátæk og umkomulaus ung
vinnukona fæddi barn, jafnvel þó á
ríkisheimili væri, að verið væri að setja
á sig mánaðardaginn. Auðvitað var
afkvæmið dæmt sveitarinnar handbendi
að guðs og manna lögum ef móðirin var
ekki því umkomin að sjá því farborða.
Móðir mín, Steinunn Jónsdóttir, var
þegar tilkoma mín skeði vinnukona á
Hafsteinsstöðum hjá þeim hjónum Jóni
Jónssyni hreppstjóra og dannebrogs-
manni og konu hans Steinunni
Árnadóttur ríka frá Ysta-Mói í Fljótum.
Faðirinn, sem mér var valinn, Hannes
Gottskálksson að nafni, var dáinn þremur
HANNES fæddist 25. mars 1888 á Hafsteinsstöðum. Hann ólst upp hjá vandalausum, eins og fram
kemur í eftirfarandi þætti, en tókst að brjótast til mennta, var í Gagnfræðaskólanum á Akureyri
1909–1910 og stundaði síðan nám við Kennaraskólann 1915–1917, að hann lauk kennaraprófi. Þá
þegar hóf hann kennslu í heimasveit sinni og kenndi nær óslitið í hartnær fjóra áratugi. Samhliða
stundaði hann búskap á Melbreið frá 1921 til æviloka 1963, og tómstundum sínum varði hann í
margvíslegt fræðagrúsk. Handrit hans flest eru varðveitt í HSk, margar þykkar bækur. Hann kom
að ýmsum opinberum málum, sat m.a. 30 ár í sveitarstjórn auk annars. Steinunn móðir hans
var síðustu árin í skjóli Hannesar á Melbreið og konu hans, Sigríðar Jónsdóttur (1900–1995) frá
Melbreið. Þau eignuðust átta börn. Hannes lést 20. júlí 1963.
Þátturinn er skrifaður um 1954 og er í eigu erfingja Hannesar. Hér er hnikað til greinaskilum,
stafsetning og greinarmerki samræmd að hætti bókarinnar. Skýringar og viðbætur eru felldar í
hornklofa, en augljós pennaglöp eru leiðrétt athugasemdalaust. Fyrirsögn þáttarins er frá ritstjórn
komin.
Ritstjórn.