Skagfirðingabók - 01.01.2016, Page 79
BROT ÚR ÆVI
79
þennan hámenntaða mann. Ég vissi ekki
þá hvílíkur mannvinur séra Magnús var.
Ég var því uppburðarlítill og dauðfeiminn
þegar ég byrjaði að tala við hann, en það
fór fljótt af. Hann var svo elskulegur í
viðmóti og talaði við mig eins og hann
hefði þekkt mig lengi, svo ég fékk bæði
elsku og virðingu á honum sem hefur
haldist æ síðan. Þegar ég hafði keypt
bækur, ritföng og annað sem með þurfti
til náms, en það keypti ég allt hjá sama
bóksalanum báða veturna, Guðmundi
Húsið Þingholtsstræti 9 þar sem það stendur nú endurgert í Árbæjarsafni. Það er stokkbyggt
timburhús, byggt árið 1846 af Helga Jónssyni (1809–1879). Sagt er að hann hafi reist húsið
úr timbri sem gekk af þegar Latínuskólinn (Menntaskólinn í Reykjavík) var byggður á árunum
1843 til 1846. Helgi bjó í húsinu með fjölskyldu sinni, m.a. sonunum Jónasi og Helga sem
voru áberandi í tónlistarlífi bæjarins og stofnuðu Söngfélagið Hörpuna og Lúðurþeytarafélag
Reykjavíkur. Líklega að tilstuðlan bræðranna voru haldin böll í húsinu, dansað í Suðurstofunni
og kaffi drukkið í Norðurstofunni. Sonur Helga Helgasonar var (Helgi) Sigurður Helgason
(1872–1958) sem samdi lagið Skín við sólu Skagafjörður um eða laust fyrir 1910. Hann fæddist
reyndar ekki í þessu húsi heldur næsta við hliðina, Þingholtsstræti 11.
Daníel Símonarson (1838–1904) söðlasmiður eignaðist húsið árið 1881 og seldi þar framleiðslu
sína. Guðrún dóttir hans (1870–1945) veitti stúlkum tilsögn í dönsku og gítarspili, en hún bjó
í húsinu þar til hún lést og fór þá fram húskveðja á heimili hennar. Seinni kona Daníels var
Kristbjörg Helgadóttir (1842–1918) og það voru einmitt þær stjúpmæðgur sem skutu skjólshúsi
yfir Hannes á Kennaraskólaárum hans í Reykjavík.
Árið 1969 var Þingholtsstræti 9 flutt í Árbæjarsafn, en þá hafði húsið staðið autt um tíma. Það
var síðan gert upp og hafði Þorsteinn Gunnarsson arkitekt umsjón með því verki.
Ljósm.: Hjalti Pálsson.