Skagfirðingabók - 01.01.2016, Page 90
SKAGFIRÐINGABÓK
90
hans fyrsta vor til sjós, varð hann síðar
þekktur skipstjóri sem fleiri frændur
hans. Allir þessir menn úr Eyjafirði
norðan Akureyrar. Karl Sigtryggsson
frá Kambsmýrum á Flateyjardal, [síðar
bóndi í Flatey], Snæbjörn Hjálmarsson,
nú bóndi á Þormóðsstöðum í Sölvadal,
og Jón Guðbrandsson, báðir frá Saurbæ
í Fljótum.
Það var 12. maí 1922; það var kóngs-
bænadagur, daginn þann skyldi biðja fyrir
kónginum til forna, en kóngsbænadagar
hafa stundum reynst mislyndir, blikur
hafa sést í lofti, veðrin orðið válynd. Það
mun hinn aldurhnigni og þaulreyndi
skipstjóri Þorsteinn Þorvaldsson frá
Stóru-Hámundarstöðum hafa rennt
grun að, en hann fór með okkur á Sindra
frá Akureyri til Siglufjarðar er við sigld-
um út í þennan fyrsta túr. Þegar hann
kvaddi Baldvin son sinn á Siglufirði,
sagði hann svo að nokkrir af okkur heyrð-
um: „Varaðu þig á kóngsbænadeginum,
Baldi minn.“ Aðvörun þessi var stutt
en skýr, hefði því mátt betur og lengur
í minni vera. Þessi kóngsbænadagur
lét lítið yfir sér til að byrja með. Um
morguninn var blíðalogn og svo sjólaust
að rjómatrog eru eigi sléttari, en um
hádegi fór að draga þoku til landsins.
Um Vestfjarðafjöllin lagðist þoka þessi
þannig að veðurglöggum mönnum
mun ekki hafa dulist hvað hún boðaði.
Það liðu heldur ekki margir tímar þar
til Norðri konungur blés í skeggið.
Eins og hendi væri veifað var komið
afspyrnuveður með fannburði og stórsjó.
Fóru þá flest skip að sigla til lands og þar
á meðal Sindri. Ekki mun aðgæsla eða
annað hafa verið um of á sumum þessum
Jón Guðbrandsson í Saurbæ.
Einkaeign.
Snæbjörn Hjálmarsson síðar bóndi á Þor-
móðsstöðum í Sölvadal í Eyjafirði.
Ljósm.: H. Einarsson Akureyri. Einkaeign.