Skagfirðingabók - 01.01.2016, Page 132
SKAGFIRÐINGABÓK
132
um sumarið, voru: Caterpillar D-7 E
vél Viggós Brynjólfssonar (f. 1926),
International BTD-20 vél Steingríms
Felixsonar, International BTD-20, vél
Björns Runólfssonar og International
TD-18 vél frá Vegagerðinni.
Í grein í Einherja föstudaginn 29.
nóvember 1963, sem byggist á viðtali
við Gísla Felixson, segir að unnið hafi
verið með fimm stórum jarðýtum um
sumarið 1963, nótt sem nýtan dag, frá 8.
júní til 9. september.37 Ekki hefur tekist
að að afla heimilda um þessa fimmtu vél
og menn, sem unnu í Strákavegi þetta
sumar, rekur ekki minni til hennar.
Vinnuskúrar vegagerðarmanna
og aðbúnaður
ALLIR STARFSMENN bjuggu í skúrum,
sem hitaðir voru upp með olíuvélum.
Verkstjórinn hafði sérstakan skúr, ráðs-
konan hafði herbergi í öðrum enda
eldhússkúrsins, almennir verkamenn
bjuggu saman en ýtumenn voru hafðir
út af fyrir sig til að raska ekki svefni
annarra, þar sem þeir unnu á vöktum.
Í hverjum skúr voru fjórar kojur.
Skúrarnir voru þannig hannaðir að dyr
voru á miðri hlið og tveggja hæða kojur
í hvorum enda, borð um það bil á móti
Skúrar vinnuflokks Jóhanns Lúðvíkssonar við Engidalsá sumarið 1964. Unnið við ræsið á
Engidalsánni. Verið að ýta að ræsinu með International TD-18 jarðýtu frá Vegagerð ríkisins
og Þórður Eyjólfsson er að moka möl á bílinn.
Ljósm.: Gísli Víðir Björnsson.