Skagfirðingabók - 01.01.2016, Page 134
SKAGFIRÐINGABÓK
134
Rætt við Viggó Brynjólfsson ýtumann
um starfsferil hans og Strákaveg
VIGGÓ Brynjólfsson er fæddur 31.
maí 1926 á Broddadalsá í Kollafirði í
Strandasýslu og ólst þar upp til 17 ára
aldurs. Foreldrar hans voru Brynjólfur
Jónsson og Guðbjörg Jónsdóttir búandi
á Broddadalsá. Sautján eða átján ára fór
Viggó á síld fyrir Norðurlandi og vann
eitt sumar á Djúpuvík. Viggó var einn
af þessum baráttuglöðu mönnum, sem
hugsuðu gott til glóðarinnar við vinnu
í Strákavegi. Hann er nú 89 ára, þegar
þetta er ritað 14. nóvember 2015, og var
um það leyti að vinna með Caterpillar
D-7 G jarðýtu í steypumalarnámu utan
við brúna yfir Skjálfandafljót, á móti
Ófeigsstöðum.
Hann byrjaði að vinna með jarðýtu
árið 1947 vestur á Snæfellsnesi og hefur
verið viðriðinn þá starfsemi síðan, eða í
68 ár. Sumarið 2016 greip hann enn í
vélavinnu, níræður að aldri. Mun hann
að öllum líkindum vera með lengstan
starfsferil ýtumanna hér á landi. Það
þykir því við hæfi að gera hér nokkra
grein fyrir manninum og upphafi starfs-
ferils hans á þessum vettvangi.
Sumarið 1947 fór Viggó að vinna hjá
Haraldi Hafsteini Guðjónssyni (1913–
1999) frá Hólmavík með Caterpillar
D-4 jarðýtu, árgerð 1945, við flugvöll
á Gufuskálum á Snæfellsnesi, vegagerð
á Fróðárheiði og víðar. Næsta sumar
vann hann hjá Vegagerðinni með
International TD-9 ýtuskóflu, sem
Vegagerðin átti, við að moka möl á bíla
í Skagafirði. Verkstjóri var Árni Hansen
(1905–1988). Meðal annars mokaði
hann steypumöl í turn Jóns Arasonar á
Hólum. Ekki mundi Viggó hvar mölin
Vélar Viggós og Steingríms í Mánárskriðum sumarið 1963. Frá vinstri: Gísli Gunnarsson,
Svavar Jónsson, Viggó Brynjólfsson, Friðgeir Árnason, Steingrímur Felixson og Bernharður
Sturluson. Allt ýtustjórar nema Friðgeir verkstjóri.
Ljósm.: Ólafur Ragnarsson.