Skagfirðingabók - 01.01.2016, Page 144
SKAGFIRÐINGABÓK
144
var mátaður við bakkann, en þá kom í
ljós að til að koma honum klakklaust yfir
ána yrðum við að bakka honum, sem við
gerðum. Allt gekk vel að Herkonugili,
sem var erfitt viðureignar. Þar fórum
við eftir jarðýtuslóð nokkru ofan við
núverandi veg. Þar sem vegur var slæm-
ur eða brattur ýttu menn á bílinn. Engi-
dalsáin var auðveld yfirferðar.
Klukkan þrjú aðfararnótt 17. júní
1964 börðum við að dyrum á Sauðanesi
og vöktum Trausta Magnússon (f. 1918)
vitavörð af værum blundi. Hann trúði
vart sínum eigin augum. Þarna voru sjö
galvaskir siglfirskir skátar ljóslifandi á
ferð, sem voru: Jón Dýrfjörð (f. 1931),
Njörður Jóhannsson (f. 1945), Sverrir
Páll Erlendsson (f. 1948), Jóhann Ágúst
Sigurðsson (f. 1948), Birgir Vilhelmsson
(f. 1946), Jón Sigurðsson (f. 1945) og
Ásgeir Jónasson (f. 1948).
Fíatinn skildum við eftir á Sauðanesi
og ókum heim á sendibílnum, sem við
skildum eftir innan við Mánárskriður.
Við þurftum að flýta okkur heim til að
sinna verkefnum dagsins.44 Þeir félagar
gerðu sér svo ferð í Sauðanes um hálfum
mánuði seinna til að ná í Fíatinn og var þá
mynd tekin af bílnum og heimilisfólkinu
á Sauðanesi. Með þessum hætti kvöddu
þessir ungu menn liðna tíð, sem hafði
veitt þeim tækifæri til að hjálpa öðrum
og um leið aukið þeim þrek og þor.
Malburður í Strákavegi
VEGURINN VAR að mestu yfirkeyrður
á árunum 1964 til 1967 og var ofaní-
burðurinn tekinn víða meðfram honum.
Hann var grófur og leirblandinn en bast
vel. Seinni part sumars og um haustið
1966 var mikið malborið og mölin tekin
Tippmeistari í Strákavegi 1964 var Trausti Valdimarsson frá Sólheimum, sem sést hér í
þungum þönkum við að taka á móti ofaníburði í veginn, líklega ofan við Máná.
Ljósm.: Gísli Víðir Björnsson.