Skagfirðingabók - 01.01.2016, Page 178
SKAGFIRÐINGABÓK
178
honum lifandi og kvæði hans eru varð-
veitt í fjölda handrita frá 17. og 18. öld;
á handritadeild Landsbókasafns eru
honum eignuð kvæði í 248 handritum25
en gera má ráð fyrir að kvæði eftir hann
séu án höfundarnafns í fjölda handrita
að auki. Þá eru kvæði eftir hann í
öðrum handritasöfnum, t.d. Árnasafni
í Kaupmannahöfn. Guðmundur safnaði
sjálfur mörgum kvæða sinna í tvær bækur
handa afkomendum sínum, og kall-
aði þær Gígju og Fagraskóg. Því hefur
reyndar verið haldið fram að bækurnar
hafi verið þrjár og ein sé glötuð, sem
25 Skrá um handritasöfn Landsbókasafns I–III. Reykjavík: Landsbókasafn Íslands, 1918–1937; Handritasafn
Landsbókasafns I.–IV. aukabindi. Reykjavík: Landsbókasafn Íslands, 1947–1996.
Mynd á bls. 179: Titilsíða Gígju, kvæðabókar sr. Guðmundar, úr handritinu JS 232 4to.
Handritið skrifaði Skúli Guðmundsson (f. 1631), sonur skáldsins, bóndi á Bjarnastöðum í
Unadal, Skag., á árunum 1688–1689.
Stafrétt uppskrift:
Andleg Gÿa edur hliodfære
af
Psalmum, Vÿsum, Rÿmum, Kuædum og Dæme
søgum, saman tekinn Børnum synum og Naungum
til frödleiks J Gudz Orde, og annarar Na
udsynlegrar Vndervÿsunar. Af Fø
durlegre astseme Vppskrifud og til
æfeminnÿngar epterlatenn
af
Sr: Gudmunde Ellendssyne. Firr
vmm Stadhalldara ad Felle J Sliettu
hlÿd.
Ψ 104. Jeg vil lofsÿngia Drottne Myna lyfdaga
og minn Gud lofa æ so leinge sem eg er.
Endurskrifud a Biarnastødum J Vnadal af Skula
Gudmundssyne, Anno 1688.
Með nútímastafsetningu: Andleg gígja eður hljóðfæri af sálmum, vísum, rímum, kvæðum og
dæmisögum, samantekin börnum sínum og náungum til fróðleiks í Guðs orði, og annarrar
nauðsynlegrar undirvísunar. Af föðurlegri ástsemi uppskrifuð og til æviminningar eftirlátin
af sr. Guðmundi Erlendssyni, fyrrum staðhaldara að Felli í Sléttuhlíð.
Sálm. 104. Ég vil lofsyngja drottni mína lífdaga og minn Guð lofa æ svo lengi sem eg er.
Endurskrifuð á Bjarnastöðum í Unadal af Skúla Guðmundssyni, Anno 1688.