Skírnir

Volume

Skírnir - 01.04.2002, Page 184

Skírnir - 01.04.2002, Page 184
178 BJORN ÞORSTEINSSON SKÍRNIR án afskipta þeirra sem hún hefur þó róttæk áhrif á. Umræða um skrif Fukuyama um endalok sögunnar getur því varpað ljósi á nýjustu fréttir af áhrifum hnattvæðingar.8 í bók sinni kveður Fukuyama hugmynd sína um Söguna með stórum staf eiga margt að sækja til „hins mikla þýska heimspekings G.W.F. Hegels“9 - og þessi skyldleiki nær þar með einnig til hins þekkta lærisveins Hegels, Karls Marx. Þó ber okkur, að sögn Fukuyama, að gera greinarmun á meistaranum og lærlingnum hvað þetta snertir: hvorir tveggju „trúðu því að þróun mannlegra samfélaga væri ekki óendanleg, heldur tæki hún enda þegar mannkynið næði að skapa samfélagsgerð sem fullnægði hinum dýpstu grundvallarþörfum. Báðir þessir hugsuðir settu því fram hug- mynd um ‘endalok Sögunnar’: Hegel taldi þau felast í hinu frjálslynda ríki, en Marx taldi þau búa í þjóðfélagi kommúnismans."10 Til að skýra frekar merkingu hugmyndarinnar um endalok Sögunnar bætir Fukuyama því við að hún feli í sér að ekki verði „frekari framfarir hvað varðar þró- un grundvallarstofnana og þeirra grunnreglna sem undir liggja, vegna þess að svörin við öllum stærstu spurningunum verði þá komin fram“.n Og svo vill til, að mati Fukuyama, að ástand mála í hinum vestræna heimi um þessar mundir ber einmitt öll merki þess að þau álitamál sem orð sé á ger- andi hafi verið afgreidd og leyst. Þessa uppgötvun eignar Fukuyama raunar þriðja læriföður sínum, og kannski þeim mikilvægasta, nefnilega rússnesk-franska heimspekingnum Alexandre Kojéve, og lýkur lofsorði á hann fyrir að hafa „bent á mikilvæga staðreynd þegar hann fullyrti að Bandaríkin eftir stríð og aðildarríki Evrópusambandsins væru holdtekn- ing ríkis hinnar algjöru gagnkvæmu viðurkenningar sem Hegel lýsti.“12 Um þennan mikla viðburð í Sögunni, hina „mikilvægu staðreynd" sem Kojéve vakti máls á, hefur Fukuyama þau orð að þarna séu á ferðinni glæ- nýjar „góðar fréttir“13 - það er að segja, nýtt fagnaðarerindi í upphaflegri merkingu þess orðs,14 að þessu sinni pólitískt og efnahagslegt fremur en 8 Þess ber að geta að Fukuyama er engan veginn sestur í helgan stein og hefur á síðustu árum meðal annars fengist við að halda á loft málstað hnattvæðingar- innar, sem hann segir eina kostinn í stöðunni: „Þrátt fyrir afturkippi og efna- hagslegan óróa á síðari hluta tíunda áratugarins er hnattvæðingin eina færa leið- in til efnahagslegrar framþróunar" (Francis Fukuyama, „Áhrif hnattvæðingar á einstakling og samfélagsvitund“, Páll Björnsson þýddi, bls. 16-25 í Hjálmar Sveinsson og Irma Erlingsdóttir (ritstj.), Framtíð lýðrxðis á tímum hnattvœð- ingar, Atvik 4, Reykjavík, Bjartur/ReykjavíkurAkademían 2000, bls. 24). 9 Fukuyama, The end of history and the last man, bls. xii. 10 Sama stað. 11 Sama stað. 12 Sama rit, bls. 203. 13 Sama rit, bls. xiii. 14 Hér er skírskotað til gríska orðsins evanggelíon, sem þýðir bókstaflega „góðar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222
Page 223
Page 224
Page 225
Page 226
Page 227
Page 228
Page 229
Page 230
Page 231
Page 232

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.