Tímarit Máls og menningar - 01.02.2011, Blaðsíða 81
A k a d e m í s k t t o r f
TMM 2011 · 1 81
Norðlendingar bjuggu lengur í torfhúsum en aðrir landsmenn og þar
eru flestir þeir torfbæir sem Þjóðminjasafnið hefur á sinni könnu og
því hefur mikill meirihluti torfhleðslustarfs safnsins farið fram þar. Á
vegum Byggðasafns Skagfirðinga hefur verið unnið mikið starf að upp-
lýsinga- og heimildaskráningu um torfminjar og -menningu.
Á vegum Hólaskóla, Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki og Byggðasafns
Skagfirðinga var árið 2007 sett á fót samstarfsverkefnið Fornverka-
skólinn, til að halda við margvíslegri handverkskunnáttu sem var á
leið í glatkistuna. Á vegum Byggðasafnsins og Fornverkaskólans hafa
verið haldin allnokkur námskeið í torf- og steinhleðslu og á þeim nám-
skeiðum hefur verið unnið að endurbyggingu merkra húsa í héraðinu.
Án þess að nokkurri rýrð sé kastað á Íslenska bæinn þá er ljóst að í
Skagafirði hefur þróttmesta starfið á þessu sviði farið fram, enda eiga
þeir umfangsmestan arfinn.
Sigurjón kýs hins vegar að leiða þetta hjá sér en leggja þeim mun
meiri áherslu á það einkafyrirtæki sem hann situr í stjórn fyrir og tefla
því fram á móti starfi Þjóðminjasafnsins og kemst mjög víða að röngum
niðurstöðum vegna vanþekkingar á efninu. Sá þáttur í málflutningi hans
er minjavörslunni ekki til framdráttar og enn síður Íslenska bænum.
Engu að síður er full ástæða til að binda vonir við það starf sem fer
fram á vegum Íslenska bæjarins ef forráðamenn fyrirtækisins láta af
þeim leiða sið að reyna að upphefja starf sitt með ómaklegu og niðrandi
umtali um aðra sem vinna að málefnum torfminjavörslunnar af heil-
indum.
Tilvísanir
1 Tryggvi Emilsson: Fátækt fólk, s. 289–293. Forlagið, Reykjavík 2010.
2 The impact of turf structures on occupant health.: www.gerontechjournal.net, sótt 13.12. 2010.
3 Alfred Rådvad: Íslensk húsagerðarlist. Kaupmannahöfn 1918 og Íslenzk bygging. Brautryðjenda-
starf Guðjóns Samúelssonar. Norðri 1957.
4 Guðlaugur Sveinsson: Um Húsa- edr Bæa-Byggingar á Íslandi. Rit þess konungliga Íslenzka
Lærdóms-Lista Félags XI Kh. 1791.
5 Rannsóknarskýrslur Þjóðminjasafns Íslands 1999: Keldur á Rangárvöllum. Framkvæmdir á
Keldum 1997–1998 og stefnumótun um viðgerð bæjarins.
Einnig: Um torfbæjanna margbreytilegu náttúru, erindi f lutt á aðalfundi félags fornleifa-
fræðinga í Þjóðminjasafni Íslands 30. des. 1997.
Einnig: Um húsafriðunarfræði, handrit sem framlag til umræðu meðal starfsmanna útiminja-
sviðs Þjóðminjasafns Íslands 1999.
6 Munnleg frásögn Guðmundar Lúters Hafsteinssonar, starfsmanns Húsafriðunarnefndar, des-
ember 2010.
7 Munnleg frásögn Guðmundar Lúters Hafsteinssonar, starfsmanns Húsafriðunarnefndar, des-
ember 2010.