Tímarit Máls og menningar - 01.02.2011, Blaðsíða 102
Tó m a s R . E i n a r s s o n
102 TMM 2011 · 1
Í dag hef ég tíma til að spjalla við þig og ég held að þú hafir tíma líka; það er um
nóg að spjalla.
Já, við höfðum tíma til að spjalla – réttara sagt tíma þar sem hann talaði við-
stöðulaust og fór hörðum orðum um bókmenntirnar í veröldinni, því „að það er
svo sannarlega auðveldara að fá byltingarmenn til að berjast en bókmenntamenn-
ina. Þeir hafa aldrei gert neitt fyrir fólkið í þessu landi, hvorki á síðustu öld né á
þessari. Þeir eru alltaf í hlutverki þeirra sem mæta of seint og hoppa upp í hljóm-
sveitarvagn sögunnar …“
Hann hlýtur að að hafa séð sjálfan sig sem glæstan leiðtoga í hetjulegum
stellingum frammi fyrir andstæðingi sem á sinn hátt var einnig tilkomumikill
ásýndum, klæddur í snjáð spítalaföt, með ógróið sár á enninu og heltekinn
verkjum í öllum líkamanum eftir spörk sögunnar.“ 5
Eitt af því sem starfsmenn öryggislögreglunnar gerðu í yfirheyrslunum
yfir Padilla var að spila fyrir hann upptökur sem starfsmenn hennar
höfðu gert við ýmis tækifæri. Þar á meðal í samkvæmi hjá mexíkanska
rithöfundinum Carlos Fuentes í Mexíkóborg þar sem bæði hann og
chilenski rithöfundurinn og diplómatinn Jorge Edwards töluðu heldur
óvirðulega um Fidel Kastró og Carlos Fuentes kallaði Kúbuleiðtogann
„el bongosero de la historia“ – bongóspilara sögunnar og vakti mikinn
hlátur í samkvæminu. Báðir þessir höfundar voru vinir Padilla.
Hann var líka afhentur nokkrum þursum sem héldu bókmenntalega
boxkeppni þar sem þeir fleygðu honum á milli sín á milli þess sem þeir
vitnuðu í kvæði hans Á erfiðum tímum. Hann missti meðvitund og
vaknaði í ísköldu baði:
Þybbinn og rjóður læknirinn hélt höfðinu á mér undir bununni uns mér fannst
ég vera að drukkna. „Þetta er notað til að hressa við hesta, væni minn, en vertu
viss, eftir tuttugu mínútur verður hægt að sýna þig.“ 6
Rithöfundurinn Reinaldo Arenas var viðstaddur játninguna:
Kvöldið sem Padilla játaði var ógleymanlegt og skelfilegt. Þessi lífsglaði maður,
sem hafði skrifað svo dásamleg kvæði, kvaðst sjá eftir öllu sem hann hefði
gert, öllu sem hann hefði ort; afneitaði sjálfum sér og kallaði sig hugleysingja,
úrhrak og svikara. Hann sagði að á meðan hann var fangi öryggislögreglunnar
hefði hann náð að skilja fegurð byltingarinnar og ort nokkur hyllingarkvæði til
vorsins. 7
Þau níu ár sem Padilla átti eftir að búa á Kúbu var hann undir eftir-
liti öryggislögreglunnar, niðurlægður og niðurbrotinn maður. Eftir
áralanga baráttu margra vina hans erlendis fékk hann loks leyfi til að