Tímarit Máls og menningar - 01.02.2011, Blaðsíða 119
Á r H a l l d ó r s o g Vi l h j á l m s
TMM 2011 · 1 119
Rocky Horror í Hofi
Akureyringar opnuðu nýtt menningarhús, Hof, með stæl í september,
glæsilegt hús og vel búið í hvívetna. Fyrsta sýningin á stóra sviði hússins
var á Rocky Horror Show með Magnúsi Jónssyni í hlutverki Franks N
Furter. Andrea Gylfadóttir var tónlistarstjóri og söng líka Kolumbiu en
Jón Gunnar Þórðarson stýrði.
Þetta er auðvitað „endurtekið efni“, tæplega fertugur söngleikur sem
allir þekkja sem á annað borð hafa einhvern vott af áhuga á söngleikjum,
eftir honum hefur verið gerð fræg og vinsæl kvikmynd sem mér skilst
að sé mikið „költ“ og framhaldsskólar hafa sýnt verkið eftir að MH kom
því fyrst á fjalirnar hérlendis með sjálfan Pál Óskar í aðalhlutverki fyrir
einum tuttugu árum. Efnið býður upp á þessa nýtingu; í söngleiknum
villast tvö ungmenni í ofstopaveðri og leita skjóls í kastala Franks sem er
einhvers konar sambland af Frankenstein og Drakúla og slíkum verum.
Þar verða ungmennin vitni að og reyna jafnvel alls konar afbrigðilega
hegðun – en verða bara betri og þægari borgarar fyrir vikið, ef að líkum
lætur.
Ég hafði verulega gaman af þessari sýningu – enda átti ég svo sem ekki
von á öðru en von var á. Allt var faglega unnið og vel útlítandi, söngur
og leikur í besta lagi. Arnór Benónýsson var hjartanlega sammála mér
í Morgunblaðinu (14.9.), ekki síst um hlut Magnúsar Jónssonar, fannst
hann leika sitt hlutverk „asskoti vel“. En aðrir gagnrýnendur voru ekki
á sama máli. „Varla Hofi hæft“ sagði Sunna Valgerðardóttir í Frétta-
blaðinu (23.9.) og varð fyrir mestum vonbrigðum með Magnús, fannst
hann „tilgerðarlegur og þreytandi“ í stað þess að vera „klikkaður og
ógnvekjandi“. Í DV var fyrirsögnin „Horror í Hofi“ (15.9.) og samkvæmt
þeirri grein stóð ekki steinn yfir steini í sýningunni. Jón Viðar rökstuddi
mál sitt vandlega og lá við að hann sannfærði mig á köflum um að ég
hefði verið með of mikla glýju í augunum yfir þessum nýja menningar-
vettvangi í mínum gamla heimabæ. En áhorfendur eru líklega meira
sammála okkur Arnóri en Jóni og Sunnu því sýningin gengur ennþá
þegar þetta er skrifað og er auglýst út febrúar.
Áramót Shakespeares
Í árslok frumsýndu stóru leikhúsin í Reykjavík bæði verk eftir Shake-
speare á stóra sviði sínu undir stjórn erlendra leikstjóra. Í Þjóðleik-
húsinu hamaðist Arnar Jónsson í hlutverki snargeggjaðs Lés í harm-
leiknum Lé konungi; í Borgarleikhúsinu ýmist tryllti, svæfði eða töfraði