Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2011, Page 140

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2011, Page 140
D ó m a r u m b æ k u r 140 TMM 2011 · 1 að ég sé að biðja um annað verk en það sem Haukur Ingvarsson ætlaði sér að skrifa má geta þess að ég saknaði nokkuð fjölbreytilegri tenginga við íslenska bókmenntasögu en Haukur býður upp á, t.a.m. virðist mér blasa við að tengja efasemdir Laxness um skáldsöguna og tilraunir hans með nýtt frásagnarform við verk ýmissa annarra höfunda, ekki síst Þórbergs Þórðarsonar sem segja má að hafi átt í slíkum tilraunum í gegnum allt sitt höfundarverk, enda hafnar hann skáldsagnaforminu afdráttarlaust strax í upphafi ritferils síns. Að lokum eru hér örfáar athugasemdir um frágang Andlitsdrátta samtíðar- innar. Bókin er hluti af ritröð Hins íslenska bókmenntafélags og Reykjavík- urAkademíunnar sem ber yfirskriftina „Íslensk menning“ og er sú fimmta í röð þeirrar ritraðar. Hér er um útgáfu vandaðra fræðirita að ræða og efast ég ekki um að einnig sé vandað til frágangs og prófarkalesturs. Það slys hefur þó orðið hér að hluti heimildaskrár hefur fallið burt. Ekki er ólíklegt að hér sé um að ræða mistök í umbroti bókarinnar og má geta sér til um að heila síðu vanti í skrána (234). Það sem gerir þessi mistök sérlega óheppileg er sú staðreynd að þar með falla af heimildaskrá tveir helstu fræðimenn í verkum Halldórs Lax- ness, þ.e.a.s. þeir Peter Hallberg og Halldór Guðmundsson, sem Haukur vísar oft til (og fram kemur að sjálfsögðu í aftanmálsgreinum). Önnur umbrotsmis- tök má sjá á síðumótum 63/64 þar sem sama lína er tvítekin og e.t.v. eru það líka umbrotsmistök að tilvísunarmerki á s. 83 eru ekki rétt. Haukur skrifar mjög læsilegan og góðan texta og hvergi vottar fyrir klúðri eða þokukenndum útlistunum á fræðikenningum, sem er mikill kostur. Hvergi rakst ég á villur í stafsetningu en innsláttarvillur eru örfáar (s. 88, 147, 209). Þessir ágallar sem hér eru nefndir rýra á engan hátt fræðilegt gildi bókar Hauks Ingvarssonar sem er mikilvægt framlag til Laxnessrannsókna. Tilvísanir 1 Sjá t.a.m. guðfræðinginn Gunnar Kristjánsson: „Liljugrös og járningar. Um séra Jón Prímus.“ Andvari 1992; bókmenntafræðinginn Ástráð Eysteinsson: „Í fuglabjargi skáldsögunnar.“ Skírnir (vor) 1993; mannfræðinginn Gísla Pálsson: „Hið íslamska bókmenntafélag. Mann- fræði undir Jökli.“ Skírnir (vor) 1993; skáldið og guðfræðinginn Hjört Pálsson: „Eru Vikivaki og Kristnihaldið hliðstæðar táknsögur.“ Ekkert orð er skrípi 2002; og rithöfundinn Bjarna Bjarnason: „Systkinabækurnar Kristnihald undir Jökli & Drakúla.“ Lesbók Morgunblaðsins 17. jan. 2004. 2 Um Innansveitarkroniku sjá t.a.m. Preben Meulengracht Sørensen: „Sjálfum sér trúr“. Tímarit Máls og menningar 1972, Guðrúnu Nordal: „Innansveitarkronika.“ Heimur skáldsögunnar 2001 og Viðar Hreinsson: „Íslenska akademían: Kotungar í andófi.“ Skírnir, haust 1999. Um Guðsgjafarþulu sjá t.a.m. Matthías Johannessen: „Málþing um Guðsgjafarþulu.“ Bókmennta- þættir 1985 og einnig fjallar Helga Kress um allar þessar þrjár sögur í: „Okkar tími – okkar líf. Þróun sagnagerðar Halldórs Laxness og hugmyndir hans um skáldsöguna.“ Sjö erindi um Halldór Laxness 1973. 3 Á 100 ára afmæli Laxness var bókinni auk þess dreift til áskrifenda Morgunblaðsins.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.