Tímarit Máls og menningar - 01.11.2011, Page 7
L í f i ð e r f é l a g s s k a p u r !
TMM 2011 · 4 7
Lög endurspegla virðingu stjórnvalda og Alþingis gagnvart fólki og
landi og hrottaleg meðferð á náttúru landsins lýsir fyrst og síðast lítils
virðingu fyrir landi og þjóð.
Höfum við þá engu áorkað?
Vissulega, en fórnirnar eru allt of miklar. Með fulltingi framsýnna
stjórnmálamanna hefur tekist að hægja á öflum sem af örlæti vilja halda
áfram að brenna upp þjóðararfinn.
Nýverið höfum við öðlast sjálfsögð en mikilvæg mannréttindi með
Árósasáttmála.
Og loksins eiga Þjórsárver, Kerlingarfjöll og Torfajökulsöræfi ekki
lengur að valda sundurþykkju og endalausu orðaskaki á Alþingi – ötul
barátta frjálsra félagasamtaka og besta vinnan við Rammaáætlun hefur
komið þessu til leiðar – svo og staðreyndin að við erum eins og skátarnir
– ávallt viðbúin til átaka!
Og nú höfum við Hvítbók sem er afar metnaðarfullt framlag í umræðu,
stefnumörkun og stjórnun náttúrugæða og umhverfisyfirvöld sem vilja
vel. Þar kveður við nýjan, bjartan tón! En við viljum sjá árangur, miklu
meiri og áþreifanlegri árangur en til þessa – til dæmis lýðræðisvæðingu
í skipulagsmálum svo örsmá sveitafélög geti ekki fórnað náttúrugæðum
fjöldans.
Við skulum fara að ráði systra okkar og bræðra í Bólivíu og sam
einast um háleit markmið, betri leikreglur í löggjöf til að vernda hagsæld
komandi kynslóða. Og sannarlega mun sú morgunsól rísa að við sam
einumst um að þrýsta orkufyrirtækjum, orkufrekjunni, af hálendi
Íslands um leið og við kjósum nýja kynslóð þingmanna sem skilur
mikilvægi náttúruverndar, umhyggju fyrir vistkerfum og frjálsum
vötnum sem eru lífæðar Móður Jarðar.
Öflug náttúruvernd yrði hin sanna siðbót í íslensku þjóðlífi – vegna
þess að hún er félagsskapur við Móður Jörð; sprottin úr því göfugasta í
fari allra manna.
Erindi á Umhverfisþingi 2011