Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2011, Blaðsíða 50

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2011, Blaðsíða 50
J ó n B a l d v i n H a n n i b a l s s o n 50 TMM 2011 · 4 óvenjulegu jafnræði; þeir litu á sjálfa sig sem jafningja fremur en undirdánuga þjóna sjálfskipaðs yfirvalds. Var þetta ekki sjálft „villta vestrið“, löngu áður en Hollywood gerði það að söluvöru – draumur frjálshyggjumannsins sem hafði ræst á jarðríki? Fyrstu tilvísun evrópskra fræðimanna um þetta fyrirbæri mun vera að finna í annálum Adams Bede, biskups í Bremen, frá 11. öld. Þar segir biskupinn að íbúar þessarar fjarlægu eyju séu öðruvísi en fólk er flest að því leyti, „að þeir þýðast engan konung yfir sér“. Í leit að frelsinu Í samhengi evrópskrar miðaldasögu var þetta vissulega einstæð þjóð­ félagstilraun. Þetta var tilraun til að skapa samfélag frjálsborinna manna og kvenna sem lutu einum lögum en engu framkvæmdavaldi af neinu tagi. Það var engin ríkisstjórn, ekkert embættismannabákn, enginn her, engin lögregla og ekkert miðstýrt þvingunarvald til þess að halda uppi lögum og reglu meðal óstýrilátra landnema. Var þetta ekki líka draumur stjórnleysingjans orðinn að veruleika? Og meðal annarra orða: Kvenréttindi virðast hafa verið drjúgum meiri en annars staðar í Evrópu á þeirri tíð. Meðal fyrstu landnemanna voru víðkunnar og virtar ættmæður. Konur gátu ekki einasta kastað eign sinni á lönd og landgæði; réttur þeirra til hjónaskilnaðar var virtur, sem og eignarréttur þeirra við hjúskaparslit. Brimabiskupi hefði ugg­ laust þótt þetta tíðindum sæta, hefði hann bara vitað af því. Miðpunktur landnemasamfélagsins var Alþingi, þjóðþingið. Alþingi var hvort tveggja, löggjafarsamkunda og dómstóll. Það var haldið á Þingvöllum í þrjár vikur í ágústmánuði (fordæmi sem margir telja að væri til bóta að Alþingi okkar tíma tæki sér til fyrirmyndar) og þótt það væri ekki samkunda kjörinna fulltrúa, eins og nú tíðkast, var það engu að síður býsna lýðræðisleg samkunda. Þingfulltrúar komu úr röðum héraðshöfðingja, sem kvöddu með sér til þings úr héraði nánustu ráð­ gjafa sína, væntanlega vegna stjórnvisku eða pólitískra áhrifa. Þótt holl­ usta við höfðingjann væri talin dyggð, gátu heimamenn engu að síður sagt sig frá stuðningi við héraðshöfðingja eða jafnvel afsagt þá. Þetta þýddi, að varasamt var að sniðganga vilja heimamanna. Alþingi kaus sér lögsögumann – forseta – sem gegndi starfinu tiltekið kjörtímabil. Lögsögumaður var valinn úr hópi lögvísra manna og stýrði einnig dómstörfum. Hann geymdi lögin í kolli sér og sagði þau fram. Áður en lögin voru skráð (elsti lagatextinn er frá því snemma á 12. öld), fór lögsögumaðurinn með ágrip helstu laga í heyranda hljóði á Alþingi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.