Tímarit Máls og menningar - 01.11.2011, Síða 15
Ve k j u m e k k i s o fa n d i d r e k a
TMM 2011 · 4 15
lýsa því yfir að „eftir því sem verður unnin olía í heiminum, eftir 15–25
ár, þegar mögulega á þetta reynir á Drekasvæðinu, þá útiloki okkar
umhverfisstefna ekki það að Ísland verði aðili að olíuvinnslu, frekar en
önnur lönd“.30
Þessum vandræðagangi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs
gerir Gísli Marteinn Baldursson góð skil í bloggfærslu um málið þar
sem hann dregur fram mótsagnirnar í viðbrögðum flokkssystkina Kol
brúnar. Eins og Gísli Marteinn bendir réttilega á er ekki hægt að mæla
frekari olíuvinnslu og olíuleit bót á sama tíma og varað er við alvar
legum loftslagsbreytingum:
Með öðrum orðum, þeir sem raunverulega telja að jörðin sé að hlýna vegna
brennslu olíu, setja sig í mjög einkennilega stöðu með því að berjast fyrir því að
Ísland bori eftir meiri olíu til að brenna, og hiti jörðina því enn meira.31
Gísla Marteini lætur vel að ræða hræsni íslenskra græningja, en um
skeytingarleysi eigin flokkssystkina um þessi mál fer hann ekki mörgum
orðum. Ekki lætur hann því heldur svarað hvort hann sjálfur styðji olíu
vinnslu á Drekasvæðinu. Gísli Marteinn, sem er einn af fáum fulltrúum
umhverfisverndar á hægri armi íslenskra stjórnmála, veit líklega jafn
vel og Steingrímur J. Sigfússon hversu varhugaverðar slíkar yfirlýsingar
kunna að reynast ætli menn sér frama í pólitík.
Yfirlýsing Kolbrúnar Halldórsdóttur var byggð á traustum vísinda
legum forsendum. Þó kostaði yfirlýsingin hana að öllum líkindum
þingsætið þremur dögum seinna. Í ljós kom að enginn þingmaður í
Reykjavíkurkjördæmi suður hlaut eins margar útstrikanir og hún.
Tæplega fjórðungur kjósenda VG strikaði yfir nafn hennar eða færði
niður á atkvæðaseðlinum, eða alls 1.990.32 Jafnframt var stofnuð
Facebooksíða gegn þingkonunni fyrrverandi eftir kosningarnar undir
yfirskriftinni: „Nálgunarbann á Kolbrúnu Halldórsdóttur“ og skráðu
305 félagar sig í hópinn. Þar segir:
Í kosningunum 2009 átti sá gleðilegi atburður sér stað að Kolbrún Halldórs
dóttir féll af þingi.
Til að hindra það að nokkurntíman [svo] aftur í sögu lýðveldisins Íslands kom
ist hún aftur á þing skorum við á forseta Alþingis að fá á hana sett nálgunarbann
svo hún geti ekki komið nær þinghúsinu en 100 metra.
Hér er um hagsmunamál þjóðarinnar allrar að ræða!33
Sú staðreynd að kjósendur eindregnasta umhverfisverndarflokks Ís
lands skyldu refsa þingmanni sínum með svo afgerandi hætti sýnir