Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2011, Side 93

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2011, Side 93
M a ð u r i n n í k j a l l a r a n u m TMM 2011 · 4 93 „Hvað segirðu? Latur, hann Geiri,“ sagði vélstjórinn steinhissa. „Ég man eftir honum úr Sandgerði, þar þótti hann harðduglegur og ein­ staklega ósérhlífinn.“ „Svo á hann að hafa nauðgað mömmu sinni og lent í alls kyns erfið­ leikum gagnvart fjölskyldunni,“ hélt Þórður áfram. „Það er mesta furða að Pétur skyldi fara með honum á Danska Pétur. Hann hefur kannski líka lent í einhverjum vandræðum.“ „Ég veit ekki með Pétur,“ sagði vélstjórinn, „en Geiri þótti víðast hvar harðduglegur sjómaður. Og skemmtilegur líka.“ „Frænka mín, hún Gunna systir hennar mömmu,“ byrjaði Reynir, „hún lenti nú ekkert smá í því fyrir nokkrum árum.“ Hann þagnaði eins og hann hefði gleymt sér, og sýndi í smástund enga tilburði til að halda áfram sögu sinni sem öllum virtist mikilvæg í þessu máli. Uns vélstjórinn spurði hann beint út: „Hvernig lenti hún í því?“ „Ja,“ sagði hann og dró seiminn. „Hún missti manninn sinn útbyrðis. Hann var á dæluskipi hjá Bíldudal. Þeir voru fimm um borð. Bjössi maðurinn hennar var háseti og gekk aftur í. En svo hvarf hann og þegar þeir fóru að leita þá fundu þeir hann ekki og töldu að hann hefði fallið útbyrðis. Þeir fundu hann ekki þótt þeir hringsóluðu í þrjá tíma. Hann fannst ekki heldur þegar kafarar voru fengnir til að leita hans viku seinna. Tryggingafélagið heimtaði kafarana. Lík hans rak á land eftir sex vikur og þá fannst ekkert sem gat upplýst fyrir víst hvernig þetta bar að.“ Hér þagnaði Reynir og hvarf enn á vit hugsana sinna. „En Geiri fannst nú um leið,“ skaut Þórður inn. „Frænka mín reyndi að fá bætur,“ sagði Reynir eins og í beinu fram­ haldi. „En tryggingafélagið mótmælti öllu og gróf upp alls konar sögur um Bjössa. Að hann hefði skuldað út um allt og verið þunglyndur og nokkrum sinnum reynt að fyrirfara sér. Hann hefði líka haldið fram hjá henni lengi. Hún þurfti að fara í mál við þá og mótmæla öllum þessum sögum auk þess að syrgja eins og hver önnur ekkja. Þeir sögðu alltaf sömu söguna en bættu við fyrir dómi að hann hefði líka átt við drykkjuvanda að stríða og það hefði svo heldur ekkert vitni verið að því þegar hann féll svo að enginn væri til frásagnar um hvernig það hefði borið að í raun og veru. Þeir beittu öllum brögðum til að komast hjá því að borga henni bætur. Hún fór með málið alla leið til Hæstaréttar en allt var dæmt tryggingunum í hag. Og hún stóð slypp og snauð eftir.“ „Þetta er auðvitað alveg dæmigert fyrir svindlið í samfélaginu,“ sagði vélstjórinn hneykslaður. Hann hafði þrjár teskeiðar í kaffinu sínu, notaði þær til að kæla það því hann vildi hvorki nota mjólk né vatn til þess en
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.