Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2012, Page 67

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2012, Page 67
L á r v i ð a r s k á l d TMM 2012 · 1 67 háttaði Hallgrímur og sofnaði skjótt, en ekki varð hann þess var, að frændi hans færi úr fötum og svæfi, heldur sat hann við borð þar og samdi eitthvað eða orti. Næsta dag hélt hann sama starfi fram. Og er á leið daginn, bað hann Hallgrím að hverfa heim og skilja sig eptir, en lokað bréf fékk hann honum og bað hann sjálfan færa það amtmanni á heimleiðinni. Síðan kvöddust þeir, og er Hall- grímur kom að Möðruvöllum, spurði amtmaður um ferð Jónasar, færði Hall- grímur honum þá kveðju hans og skilaði bréfinu. Hann heyrði þá að í bréfinu var kvæðið „Gunnarshólmi“, og man Hallgrímur enn eptir rúm fimmtíu ár ýms lofs- og undrunarorð, meðal annars sviplík og þau sem séra Páll sál. Jónsson í Viðvík sagði mér frá, en þá var hann ritari Bjarna amtmanns. „Nú er mér bezt“ – eða „nú er mér mál að hætta að kveða“, hafa báðir sagt að hann hafi þá mælt, – eins og enginn þarf að efa.17 Lokaorðin, sem og sú staðreynd að Matthíasi fannst ástæða til að ítreka frásögn sína frá árinu áður, benda til að einhverjir hafi lýst yfir efasemdum um sannleiksgildi hennar. Slíkar efasemdir koma jafnframt fram í Kvæðafylgsnum þar sem Hannes Pétursson segir ótrúlegt að Jónas hafi „á tæpum tveimur dægrum fullkveðið þvílíkt orðlistaverk sem Gunnarshólma“ og sent það um hæl til Bjarna.18 Tekur Hannes dæmi af annarri frásögn sem Matthías hafði eftir Hallgrími þar sem gamli mað- urinn fór augljóslega rangt með staðreyndir. Í ævisögu Jónasar Hallgrímssonar frá árinu 2001 tekur Páll Valsson undir efasemdir Hannesar Péturssonar um ábyggileika Hallgríms. Hann segir einnig ástæðu til að taka með fyrirvara þá sögu Hannesar Hafstein að Bjarni hafi lagt hönd á öxl Jónasar árið 1841 og sagt: „Þegar ég dey, þá verður þú eina þjóðskáldið okkar.“ Páll bendir á að þetta sumar hafi kastast alvarlega í kekki með skáldunum og rifjar jafnframt upp einu skrásettu ummælin sem til eru með hendi Bjarna um Jónas, úr bréfi frá árinu 1837: „Orðfærið er gott í Fjölni en Jon. Hallgr. er hið drambsam- asta dýr.“19 Þykir Páli að frásögn Hannesar Hafstein sé dæmi um það hvernig „tíminn leggi sína mildandi hönd yfir samskipti tveggja skálda, sem voru umdeild í lifanda lífi en dýrkuð og dáð eftir sinn dag. Þá hefst helgimyndasköpunin.“20 Mér finnst ástæða til að hnykkja á þessum orðum. Unnt er túlka lýsinguna á því þegar Bjarni leggur hönd sína á öxl Jónasar sem týpólógíska mynd sem minnir á fresku Michelangelos Sköpun Adams í Sixtínsku kapellunni í Róm þar sem fingur Drottins og Adams eru við það að snertast. Nú orðið er auðvitað útilokað að sanna að þeir Hallgrímur Tómasson og Hannes Hafstein hafi vísvitandi farið með rangt mál en óneitanlega er það snilldarbragð í bókmennta- sögulegu samhengi að láta Bjarni kanónísera Jónas tvívegis á árunum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.