Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.2017, Side 17

Tímarit Máls og menningar - 01.03.2017, Side 17
M é r þ y k i r m j ö g g a m a n a ð v e r a b a r n TMM 2017 · 1 17 mér finnst gaman að vera miðpunkturinn en ég þarf líka mjög mikið að vera einn. *** Hvort var skemmtilegra að vera barn eða unglingur? Mér fannst örugglega skrítið að vera unglingur en ég er ennþá barn og ég var líka barn sem unglingur. Mér þykir mjög gaman að vera barn. Því fylgir viss sársauki og svona yfirþyrmandi hugsanir einsog: Alheimurinn er óendanlegur, úff, hvað merkir það? Ég mun deyja – en hvað er dauðinn? Og hvað gerist ef allir í fjölskyldunni minni hverfa? Áríðandi og erfiðar spurningar sem börn eiga oft erfitt með að ýta frá sér. En listamenn eru börn og neita að fullorðnast. Plús að ekkert er nokkru sinni fullorðið – orðið að fullu. Það vita börn, það vita listamenn. Varstu mömmustrákur, pabbastrákur? Hvorttveggja. Ég á báðum foreldrum mínum svo margt gott að þakka. Og nafna mínum, honum afa, og einkum þó líka ömmum – ömmur eru burðarstoðir heimsins. Hafa foreldrar þínir haft áhrif á bækurnar þínar? Örugglega og bara einsog allt og allir í kringum mig. Pabbi er mikill íslenskumaður. Í mörgum grunnskólum er kennt eftir hann íslenskurit, Kennslubók í málvísi og ljóðlist, ég myndskreytti nýjustu útgáfu hennar. Ég á honum mjög margt að þakka hvað varðar tilfinninguna fyrir málinu en ég þurfti líka að brjótast undan ægivaldi tungumálsins og hans og leyfa mér að skrifa vitlaust og flýja reglurnar. Mitt er ekki að halda tungumálinu ósviknu heldur að komast á þann stað að segja sögu – það er sagan sem skiptir máli, ekki tungumálið. En pabbi hefur haft mikil áhrif á það að ég skrifaði. Hefur mamma þín haft áhrif á femínísk sjónarmið þín sem eru augljós af ritum þínum og viðtölum? Mamma er bæði hörkutól og kærleikshnoðri. Útivinnandi dugnaðarforkur og heimavinnandi stoð og stytta. Áhrifin eru helst óbein: ég hef alltaf dáðst að því hvernig heimurinn leikur í höndunum á henni. Við karlmenn erum, sagnfræðilega séð, býsna flinkir í að mölva heiminn, til dæmis með því að heyja styrjaldir, og á meðan heyja konurnar hið raun- verulega stríð: ala upp börn, glíma við dauðsföll í fjölskyldunni, fæða heim- ilisfólkið – og harka af sér. Karlar farga, konur bjarga. Wislawa Szymborska orti um þetta í fínu ljóði, Endirinn og upphafið: eftir sérhvert stríð þarf einhver að laga til. Og okkar eigin Ingibjörg Haraldsdóttir, sá frábæri þýðandi og skáld, blessuð sé minning hennar, var á svipuðum slóðum í ljóðinu Kona þegar hún lýsti antíklímaxi stórbokkafundanna: þá
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.