Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.2017, Blaðsíða 45

Tímarit Máls og menningar - 01.03.2017, Blaðsíða 45
B a r n a l æ t i TMM 2017 · 1 45 heyinu var sölnuð og hvít eins og einhver hefði hellt yfir hana flösku af klór. Okkur tókst ekki alveg að fela sjónvarpið en við vorum orðin uppiskroppa með hey svo að þetta varð að duga og við bisuðum við að rúlla hjólbörunum í gegnum vesældarlega runnana við endann á stígnum. Beðin þar voru öll úttröðkuð eftir krakka í ævintýraleit. Við sáum enga fullorðna á leiðinni. Bara nokkra smákrakka sem voru að leika sér í sandkassa á rólóinum. Þau störðu á okkur á meðan við fórum fram hjá. Hausarnir snerust hægt eins og öryggismyndavélar. Ég gaf þeim horn auga en hann virtist varla taka eftir þeim. Hann var niðursokkinn í að útskýra hvernig maður gæti startað bíl án þess að vera með lykil með því að nudda tveim vírum saman. Ég skildi ekki alveg hvernig það virkaði og á endanum viðurkenndi hann að hafa ekki prufað það sjálfur. „Ekki enn,“ sagði hann. Hann sagði mér líka frá því hvernig maður gat blandað saman matarsóda og vatni í dollu, hrist dolluna og skilið eftir á tröppunum hjá óvinum svo að lokið springi af og hvítt klístrið slettist yfir hurðina, og hvernig litlu plast- hamrarnir sem hanga stundum við neyðarútganginn í strætó geta brotið hvaða gler sem er í mola með einu léttu höggi. „Ef við værum með svoleiðis núna þyrftum við ekki að burðast með þetta,“ sagði hann. Hann talaði sam- fleytt alla leiðina móður og másandi á meðan hann bisaði við að ýta sjón- varpinu. Ég bauðst til að taka við og ýta líka en hann sagði að hann gæti gert það sjálfur jafnvel þótt ég sæi að hann var alveg að sligast. Þegar við komum loks á leiðarenda reyndist þar vera þriggja hæða bíla- stæðahús við hliðina á enn hærri skrifstofubyggingu. Allir voru farnir heim og ég áttaði mig á að það var komið fram yfir kvöldmatartíma en gleymdi því þó fljótt þegar hann benti mér á ástæðuna fyrir að hann hafði valið staðinn. Það var girðing allt í kringum bílastæðahúsið og hlið við innganginn. Lík lega læstu þeir því á næturnar en hliðið stóð galopið þegar okkur bar að. Girðingin var úr járni og ansi stæðileg, með gaddavír efst. Girðingar- staurarnir háir, hærri en girðingin sjálf, og toppurinn sorfinn niður og odd- hvass. Þeir stóðu eins og spjót upp úr jörðinni hringinn í kringum bílastæða- húsið svo að þetta leit út eins og kastali eða fangelsi. Það voru þessi spjót sem hann hafði í huga. Hann vildi koma einu af þessum spjótum í gegnum skjáinn með því að henda sjónvarpinu fram af efstu hæðinni. Við þurftum bæði að ýta undir hjólbörurnar til að koma þeim upp alla rampana. Það var enginn á svæðinu til að stöðva okkur eða spyrja hvað við værum eiginlega að gera. Bílastæðahúsið var alveg tómt fyrir utan örfáa bíla sem kúrðu í dimmustu skúmaskotunum. Þriðja hæðin var þaklaus með vegg og handriði allan hringinn. Okkur tókst einhvern veginn að ná sjónvarpinu upp úr hjólbörunum og koma því upp á vegginn. Það vóg salt á handriðinu á milli okkar. Hann teygði hálsinn til að gægjast yfir brúnina og passa að það væri spjót fyrir neðan okkur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.